Var ekki til þráður þar sem upp voru taldir góðir sjónvarpsþættir? Maður hefur séð allt hérna orðið.
Annars er hér smá viðbót:
The Mighty Boosh
The IT Crowd
Garth Marenghi's Darkplace
Skemmtilegt nokk er töluverð skörun á leikarahópum ofantalinna þátta.
Band of Brothers
Er það eitthvað oná brauð? Klórar sér í höfðinu
Annars vil ég bæta inn Einu sinni var... með upprunalegu talsetningunni.
Ps. Þarfi: Jú, mig rámar í þráðinn, auk þess sem Ég man... inniheldur efalaust margar góðar sjónvarpsminningar. Hér er þó um að ræða sérstakt verkefni.
Mythbusters
Titus
og bara fyrir mömmu... Dallas... Starir þegjandi út í loftið
Muppet show
Q.I. með Stephen Fry
Band of Brothers
Þarna er ég innilega sammála.
Einnig nokkuð skemmtilega sýrðir þættir sem sýndir voru fyrir örfáum árum, Kingdom Hospital.
Animaniacs.
Ren & Stimpy
V (kannski ekki elst vel, en samt...)
A bit of Fry and Laurie
Væri gaman að sjá Benny Hill á laugardagsmorgnum þegar maður er þunnur og nennir ekki að teygja sig í fjarstýringuna
Reyndar á ég megnið af því sem komið hefur fram á DVD. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Ætli maður verði ekki að fara að fjárfesta í þessu á BluRay.
Ætli maður verði ekki að fara að fjárfesta í þessu á BluRay.
Jú láttu endilega kapítalistana plata þig í það. Það hefur ekkert nema gott í för með sér.
Bíómyndir:
"Eggs, Beans and Chippendales"
"A Can of Beans"
"Mr Bean's Holiday"
Löður!
Bendir Veina og Hlebba á að prófa að lesa þráðinn...
M*A*S*H
M*A*S*H
Hétu þeir ekki Spítalalíf uppá íslensku?
Ég hefði nú haldið að Texi myndi biðja um Húsið á Sléttunni... eða Bonanza... Starir þegjandi út í loftið
Það er svo augljóst að ég á ekki að þurfa að biðja um það!
Fyrst við erum farin að tala um vestra og landnemaþætti þá vil ég líka fá Young Riders með vini mínum Stephen Baldwin þegar hann var ljóshærður og sætur. Ég væri sko alveg til í að taka hann með mér í útreiðartúr á Bakbrotsfell. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Man einhver eftir þáttunum um þrífætlingana ?
Ég man að ég var soldið smeykur við þá.
En fyrir alla muni, EKKI sýna "Murder she wrote"
Hvað meikar sens við að gömul kelling labbar um allt og leysir morðmál, í hverri viku, í bæ sem 1 morð á ári á sér stað ?
Man einhver eftir þáttunum um þrífætlingana ?
Ég man að ég var soldið smeykur við þá.
En fyrir alla muni, EKKI sýna "Murder she wrote"
Hvað meikar sens við að gömul kelling labbar um allt og leysir morðmál, í hverri viku, í bæ sem 1 morð á ári á sér stað ?
Hey, hún fór nú stundum í ferðalög til hinna ýmsustu ættingja og vina (sem lentu akkúrat í því helgina sem Jessica blessunin var í heimsókn að einhver náinn mætti örlögum sínum á vofveiflegan hátt).
Mig langar annars mjög mikið að Sjónvarpsstöðin Njörður taki til sýninga hina ágætu þætti 8 out of 10 Cats.