Mikið er þetta jólalegur þráður. Ljómar upp
Ég þoldi voða illa Á baðkari til Betlehem af þeirri ástæðu að ég var (og er ennþá) skíthrædd við fjandans krákuna.
Einnig var ég hrædd við kerlinguna í Bláma stjörnustrák. Pú og Pa var samt yndi.
Er ekki einhver ofurnörd sem getur hent því upp á Þúrör? Vonar
Besta jóladagatalið sem ég hef séð... er í gangi núna (reyndar það eina sem ég hef horft á)...
Á baðkari til Betlehem var einkar gott fyrir þær sakir að ég skemmti mér óendanlega í baði meðan á sýningum stóð. Eins konar baðdraumar og þá var ímyndunaraflið frjótt. Ég held það hafi verið kappakstursbíll og flugvél, svo gat ég rennt mér í fjöllunum á því líka.
Ég lýsi hér með eftir ímyndunarafli!
Leggur dun í púkkið hjá hórkarli Það hljóta einhverjir að geta séð af hinum hlutunum.
Þá getum vér loks óskað vinkonu vorri formlega gleðilegra jóla.
Ljómar upp.
Þetta jóladagatal er náttúrulega meingallað fyrirbæri. Ég horfði alltaf á megnið af þáttunum en missti svo af þeim síðasta. Það horfir enginn á sjónvarpið á aðfangadag!
Annars man ég best eftir Pú og Pa. Enda var það sýnt tvisvar í minni tíð...
7. desember
Annar sunnudagur í aðventu
Finnska: Hyvaa joulua.
Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúbarnið er.
Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans,
því drottinn sjálfur soninn þá
mun senda'í líking manns
Lilja S. Kristjánsdóttir
Þið eruð að grínast, er það ekki? Á baðkari til Betlehem er eitt það alversta, ef ekki bara alvondasta, sem framleitt hefur verið. Ég fæ enn hroll bara við að hugsa um leikkonuna sem lék vondu konuna. Þið verðið að fyrirgefa, mér finnst hún með eindæmum lélegur leikari og alltaf föst í sömu árans óþolandi svipbrigðunum. Kúgast

Þú ert ekki laus við væntingar, skál!
Á baðkari til Betlehem var fín hugmynd en afspyrnuilla framkvæmt. Lélegir leikarar og léleg vinnsla. Pú og Pa voru ógeðslega fyndnir!
Pú og Pa voru ömurlegir! Hrikalega leiðinlegt sjónvarpsefni, en dagatalið um kallinn á bátnum og ísbjörninn var skemmtilegt... svo rámar mig í að ég hafi haft afspyrnu gama af Stjörnustráknum.
Pú og Pa voru ömurlegir! Hrikalega leiðinlegt sjónvarpsefni, en dagatalið um kallinn á bátnum og ísbjörninn var skemmtilegt... svo rámar mig í að ég hafi haft afspyrnu gama af Stjörnustráknum.
Pú og Pa voru uppfullir af bröndurum fyrir fullorðna.
Brandarar fyrir fullorðna í barnaefni er alltaf mjög virðingarvert framtak. Mér sýnist hinsvegar á umræðunum hér að barnaefnið hafi ekki þótt skemmtilegt fyrir börnin. Það er verra.
Pú og Pa voru ömurlegir! Hrikalega leiðinlegt sjónvarpsefni, en dagatalið um kallinn á bátnum og ísbjörninn var skemmtilegt... svo rámar mig í að ég hafi haft afspyrnu gama af Stjörnustráknum.
Pú og Pa voru uppfullir af bröndurum fyrir fullorðna.
Sem er ömurlegt þegar maður er krakki...