Örlygsstaðabardagi IX
Skráðir:
1. Wayne Gretzky .......... [Denny Crane]
2. Ívar Sívertsen .............. [Eigið prump]
3. Fergesji ..................... [Prump úr Ívari]
4. Geimveran .................. [Dínamít]
5. Næturdrottningin ......... [Ást]
6. hvurslags .................... [Eldflaugaspjót]
7. Regína ....................... [Borðhnífur]
8. Línbergur Leiðólfsson ... [Heftari]
9. Anna Panna ................ [Hálfreyktur vindlingur]
10. GerviSlembir .............. [Tölvumús]
11. tveir vinir ................... [Knús]
12. Don De Vito .............. [Haglarinn]
13. Útvarpsstjóri ............. [Tappatogarinn]
14. Offari ........................ [Framsókn]
15. Skabbi skrumari ...... [Beinagrind úr útrásarvíking]
16. Mikki mús ............... [Rafmagnssnúra]
17. Upprifinn ................. [Vopn]
18. Tumi Tígur .............. [Tunna af blút]
Skráningu líkur miðvikudaginn 12. nóvember klukkan 10:45 að íslenskum tíma.
Aðgerðir skulu berast sem fyrst og eigi seinna en miðvikudaginn 12. nóvember klukkan 19:00 að íslenskum tíma.
Leikreglur
Allir leikmenn eru vopnaðir.
Í hverri lotu sendirðu mér einkapóst þar sem þú segir mér að þú ætlir að gera eitthvað eitt af eftirfarandi:
1. Skjóta annan leikmann. Sá leikmaður deyr og er úr leik, nema sjá neðar.
2. Skjóta upp í loftið/neita að skjóta. Þú deyrð ef einhver skýtur þig en ef enginn gerir það þá lifirðu af.
3. Skjóta sjálfan þig. Það verður þess valdandi að allir sem reyna að drepa þig deyja. Ef enginn reynir að drepa þig þá deyrðu.
Seinasti maður á lífi vinnur!
Auðvitað má spjalla saman á þræðinum á meðan beðið er eftir því að allir skili mér því sem þeir ætla að aðhafast. Niðurstöður lotunar verða þá birtar og ný lota hefst.
Aðgerðum má skila inn hvenær sem er eftir skráningu þó ekki seinna en uppgefinn frestur segir til um.
Vert er að taka það fram að þeir sem skila aðgerðum sínum of seint verða miskunarlaust aflífaðir af leikstjórnanda.
EKKI SKRÁ ÞIG Í LEIKINN EF ÞÚ ÆTLAR EKKI AÐ TAKA ÞÁTT!
Hvernig ætli gangi að drepa sig með borðhníf? Sargar
Ég ætla að vera með! Hleður haglarann
Ég verð með! mundar tappatogarann
Já! Það var laglegt! Stefnir í svaka leik, fullt af fólki og geðveikt gaman. Koma svo þið hin! Vera með og hafa soltið fútt í þessu hérna!
Jæja ég var manaður. Ég ætla að vinna þennan leik með Framsókn að vopni.
Jæja. Eru ekki fleiri sem þora?
Sáraeinfaldur leikur í rauninni. Stórskemtilegur!
Ég er með... vopnaður beinagrind úr úrbeinuðum útrásarvíkingi...
Glæsilegt. Fleiri og fleiri skrá sig!
Ég vil svo endilega hvetja fólk í að æsa hvort annað upp og ögra svolítið. Það skapar spennu.
Það er vonlaust að æsa þetta lið upp....
Wayne Gretzky kann ekki að yrkja, Ívar Sívertsen er bara horrengla, Fergesji kann ekki að þéra, Geimveran er léleg í mafíleiknum, Næturdrottningin er ástfangin í Jarma, hvurslags er heimalingur, Regína er bleik, Línbergur Leiðólfsson kann ekki að varpa tening, Anna Panna er fölsk, GerviSlembir er raunverulegt kaos, tveir vinir er í raun einn óvinur, Don De Vito er nýliði, Útvarpsstjóri stjórnar Bylgjunni og Offari er kommúnisti
Hvernig er hægt að æsa svona lið upp... Hleypur skríkjandi út
Það er öllum boðið Kargur.
Viltu vera með?
Er skráningu ekki löngu lokið? Nei, það er víst 11 í dag en ekki sá tólfti. Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ég verð með og vopnið mitt er rafmagnssnúra.
Skabbi Skrumari kann hvorki að yrkja, þjera né varpa teningum þrátt fyrir að hafa verið hér lengur en við flest, sem er einmitt málið. Hann er að rotna að innan og kafna í gamalmennafýlu. Skabbi er lélegur í mafíuleiknum og er ástfangin af Tony Clifton. Skabbi er líka falskur kommúnisti og elskar að hlusta á Bylgjuna auk þess sem hann er drykkjusjúk ræfilstuska og yfirgangsvargur með hor í hárinu. - Og hananú!
ég verð með.
Ég ætla að vera með líka, vopnaður tunnu af Blút, aftur.