Plott var gert og góður maður geltur burt.
Af hverju var aldrei spurt.
Spurt og svarað, spekingarnir spá í því,
og taka aldrey frá því frí.
Frí að taka finnst mér oft svo fáranlegt.
Finn að ég er fíflið tregt.
Tregt er mér um tungu nú að tjá mig hér,
aldrey þó ég annað fer.
Fer á barinn flesta daga fæ mér öl.
Ef efnin leyfa einnig söl.
Sölmundur með soninn Kára settist að
austan rétt við Staðarstað.
Á staðinn þennan stundum fer til styrktar mér.
Alltaf hann af öðrum ber.
Berrassaður barðist ég við byl úr snjó,
það alvarlega úr mér dró.
Dró sig út úr dægurlaga dansi og söng.
Ákvörðunin reyndist röng.
Rönguna ég rembdist við í rúmbunni
en settist loks í zúmbunni.
Zúmbu dansa sumir menn en sumir ei
Segi ég við zúmbu nei.
Neikvæðni er nokkuð útbreidd norðan lands,
þó sjatnar hún ef sést til blands.
Blandaðan æ brjóstsykur sem barn ég fékk.
Hann gefinn var af góðum rekk.
Rekkjan mín er rympuð saman ræflum úr,
fátækan ég fæ þar lúr.
Lúrir þú of lengi í rekkju lati þegn.
Taka þyrfti þig í gegn.
Gegnumtrekkur getur valdið gömlum þjó
ristilþrota og kláðakló.
Klóra ég nú klæmin orð á klósettvegg.
Rek ég svo upp hláturhnegg
Hneggið geggjað hafði Flosi, heyrði ég.
Ey var honum tungan treg.