Tökum upp þráðinn frá Kaffi blút´.
Andþór orti.
Skotinn var svo skelfilega skrýtinn fýr
en skemmtilega í góðum gír.
---
Ég byrja..
Gírugur er glaði Zimmer- Gunther - mann
vísur einnig kveða kann
Kann ég mjög vel kvæði nokkur, kyrja þau.
Spilar undir okkar bauv.
Bauv er orðinn eitthvað stærri eins og við.
Ætti brátt að borða svið.
Sviðið stormar Steinunn um í stígvélum,
með albínóa allsberum.
Berum okkur alltaf vel þó ausist regn.
Annað verður mér um megn.
Megn er daunninn, Mammons hræ er morkið, rotið.
Að landi hefur líkið flotið.
Megn er daunninn, Mammons hræ er morkið, rotið.
Að landi hefur líkið flotið.
Þetta er afhending..hjá þér..munar bara um stúfinn..
Megn er daunninn, Mammons hræ er morkið, ljótt.
Að landi hefur flotið fljótt.
Fljótast það ég fattaði, með feitan kálf.
að offari er aukasjálf
sjálfsagt getur sérhver maður séð í raun
að evra virkar ekki baun
Baun í dós er betri en ein baun á jurt.
Þegar kjörin þjóta burt.
Burt einn Reynolds, bandarískur bíókall,
kátur stundar kynlífssvall.
Kynlífssvall með kvenpeningi kýs hann Örn,
hann á líka hundrað börn.,
Börnin smá af bergi háu byltu þrá.
Verða blá og bólgin þá.
Þá ég skunda hratt til Hafnarfjarðar, hjá
þeim ég una mér vel, já
[Obbobbobb... síðasti stuðull í fyrri línu þarf að vera í fimmta braglið (feitletrað)... svo vantar stuðla í línu tvö (skáletrað...
Betra væri: Þá skrepp hratt til Hafnafjarðar hér er mjá
Þeim hjá una allvel já.
Skabbi]
Takk fyrir það. GerviSlembir.
Þá ég skunda hratt til Hafnarfjarðar, hjá
þeim ég una mér vel, já
Ekki alveg rétt..stuðull þarf að vera í fimmtu kveðuí fyrstu línu og það þarf að hafa stuðla í annarri..mér dettur ekki í hug nokkur leið til að laga þetta..en þú ert á réttri leið samt.
Læt bara friðargæsluliðana sem eru alvitrir sjá um þetta og kem með næstu stúfhendu.
Játaði það Jóki Aðal jävla sæll
að hlewagastiR hans sé þræll!
Þrælar banka bísnast enn og búta sjóð.
Hvert fer okkar þrútna þjóð?
Þjóðin sjóðþurrð sýtir nú og syrgir auð.
Er samt ekki alveg dauð.
Dauðinn arkar um á slitnum inniskóm.
Allvel þekkir auðn og tóm.