Lappi, þetta á að vera keðja.
Meðlagsgreiðslur mörgum þykja mikið böl.
Öðrum leysa alla kvöl.
Kærar þakkir Regína.
--------------------------
Hvölum fjölgar selum fækkar loðnan frí
Út á sundum bátur brunar , golan hlí
Kærar þakkir Regína.
--------------------------
Kvölum fjölgar selum fækkar loðnan frí
Út á sundum bátur brunar , golan hlí
Lestu þér til um stúfhendur : http://www.heimskringla.net/bragur/Stufhenda.php
Svo fylgirðu eiginlega ekki keðjunni , mér finnst full mikið að telja hvalur og kvöl sama orðið.
Ég kem með kvalarvísu:
Kvöl í sál er mikið mál en mun þó xT
ætíð slökkva innri bál.
Bálið inni brennir sinni, brestur von.
Gengið lækkar lon og don.
Don kíkóti datt eitt sinn í djúpan skurð.
Enginn getur opnað hurð.
Hurðafagrar hallir standa hér og þar,
afskaplega útskornar.
Strit er líka streð og bæði strögl og puð.
Enda er ég ekki Guð.
[obbossí... vottar fyrir ofstuðlun í síðustu línu... Skabbi]
Guðrún bara gefur okkur góðan mat.
Allir borða á sig gat.
Stritum alltaf stöðugt þar til stífnum við
og fögnum slítnum feitum kvið.
Gat í viti veit ég um sem veitir frið
að strjúka mínum metta kvið.
Það er best að þegja núna þegar kvöld-
bænin er um ógnargjöld.
Ógnargjöldin ægisköld nú ergja kvöld
Tók við völdum vargaöld.
Vargöld, skálmöld, vindöld, keröld, vesaldar.
Sælir gerast systrungar.
Systrungarnir sænga vildu saman hér
en deildu um það hvor daman er.
Er mér heitt eða' er mér volgt eða' er mér kalt?
Kannski' ég fái' mér kakómalt.
Kakómalt og kók og malt og kanelsalt
Þetta skaltu þamba allt.