Undanfarandi innlegg eru alls ekki nógu líkleg til að blekkja lesendur þannig að þeir haldi að um sje að ræða rannsóknir í kjarneðlisfræði eða skyldum greinum.
Þeir er á undan hafa gengið á mælendaskrá hafa allir látið glepjast af sveittum líkömum og barnaleikjum á fullorðinsaldri (knattspyrna er því ekki ólík bleyjublæti (e. diaper fetish)) og því ber að fjarlægja þá úr fundarsal hið snarasta, áður en umræðan færist á enn lægra plan.
En allt um það. Hefur einhver minnst á þá kolefnisjöfnun sem nauðsynleg er til að bæta móður náttúru þann skaða sem skammtímainnflutningur trylltra klæðskiptinga hefur valdið?