Vjer viljum með innleggi þessu vekja athygli á þeirri alvarlegu staðreynd að EM í knattspyrnu flýtir lítillega fyrir dauða alheimsins alls eins og hann leggur sig. Vjer vöktum athygli á þessu grafalvarlega vandamáli í athugasemd við fjelagsrit Vambans en við merkilega litlar undirtektir. Það er einkennilegt því mál þetta snertir nokkuð marga (nánar tiltekið alla íbúa alheimsins).
Þannig er nefnilega mál með vexti að í samræmi við 2. lögmál varmafræðinnar eykur knattspyrna lítillega sk. óreiðu (entropy) í alheiminum. Sífellt aukin óreiða leiðir að lokum í reynd til dauða alheimsins í núverandi mynd. Það er auðvitað með öllu óforsvaranlegt að flýta fyrir þessu ferli og því leggjum vjer hjer með formlega til að hverskyns óþarfar athafnir er hraða þessu ferli verði þegar í stað bannaðar. Skál !
Hægir þá áfengisdrykkja á þessu ferli þar sem menn eru ólíklegri til að hreyfa sig meira? Ljómar upp
Já, hún getur gert það enda skáluðum vjer í lok innleggs vors Fær sjer aukaskammt af fagurbláum drykk.
fer í fótbolta
Ef sífellt aukin óreiða leiðir að lokum til dauða alheimsins í núverandi mynd, er þá ekki möguleiki að það skapist alheimur í annarri mynd á eftir? Eða jafnvel þegar kominn af stað?
Hvaða áhrif hafa hugsanir á óreiðu alheimsins?
Þorir ekki að hugsa mikið í augnablikinu
Ljómar upp
Hugsar mjög stíft* og bíður spennt eftir að sjá breytingu á alheiminum
* þ.e. horfir ekki á fótbolta.
Ef sífellt aukin óreiða leiðir að lokum til dauða alheimsins í núverandi mynd, er þá ekki möguleiki að það skapist alheimur í annarri mynd á eftir? Eða jafnvel þegar kominn af stað?
Er ekki vel hægt að nýr eða annar alheimur sé einhverstaðar annarstaðar? Nýrri og eldri og jafnvel fleiri? Eins og kúlur í kraumandi grautarpotti? Þegar Móðir Guð eldar títuberjarúggraut handa börnum sínum? sleikir varirnar og hugsar um títuberjarúggraut
Það veldur oss miklum áhyggjum hve litlar undirtektir sú ábending vor að EM í knattspyrnu auk ýmissa fleiri athafna flýtir lítillega fyrir dauða alheimsins. Þar er ekkert smámál á ferðinni eins og augljóst ætti að vera (en það virðist samt af einhverjum ástæðum fáum augljóst nema oss).
Óttumst vjer að þetta sinnuleysi og skortur á undirtektum vegna þessa grafalvarlega máls muni orsaka að brátt detti allt í dúnalogn hjer á Gestapó og að 'orkugjafi' Gestapósins stöðvist með öllu þannig að það lendi jafnvel í skrumgleypinum. Slíkt getur haft margvíslegar afar neikvæðar afleiðingar í för með sjer á borð við að eigi verði ritað eitt einasta orð hjer í margar vikur.
Fleiri en vjer hljóta að hafa af slíku þungar áhyggjur.
Í ljósi þessarar ábendingar Vladimirs legg ég til að áhugamenn um ´sk´ knattspyrnu fái annan alheim til að útjaska fyrir aldur fram en við hin sem viljum heldur skála og hafa það næs getum haft þennan í friði.
xT
Ég styð tillögu Upprifins.
Réttir upp hönd
Ég styð líka tillögu Upprifins. Einnig legg ég til að allir Ólympíuleikar verði framvegis haldnir í þeim hinum sama alheimi og knattspyrnan fær til umráða. Ef við sendum allar hreyfifrekar íþróttir þangað, þá flýtir það fyrir dauða þess alheims og þar með dauða allra hreyfifrekra íþrótta. Þar með ætti vandamálið að vera úr sögunni fyrir fullt og allt. Ljómar upp
Ég styð líka tillögu Upprifins. Einnig legg ég til að allir Ólympíuleikar verði framvegis haldnir í þeim hinum sama alheimi og knattspyrnan fær til umráða. Ef við sendum allar hreyfifrekar íþróttir þangað, þá flýtir það fyrir dauða þess alheims og þar með dauða allra hreyfifrekra íþrótta. Þar með ætti vandamálið að vera úr sögunni fyrir fullt og allt. Ljómar upp
Ég tek það sem svo að þú ert einlæg áhugamanneskja um skák?
Mér er slétt sama um skák. Mér er bara illa við of mikla hreyfingu.