Eigi minnumst vjer þess að hafa sjeð nokkurn gest hjer minnast á lygna eða jafnvel einkennilega þögla leikara í kjölfar árshátíða. Hafa virkilega engir gestir hjer orðið fyrir því að raunheimaleikarar þeir er þeir senda jafnan á árshátíðir og hliðstæðar samkomur annaðhvort neiti að skýra frá því er þar fór fram eða ljúgi því augljóslega ?
Ástæðan fyrir þessum vangaveltum er sú að sje eitthvað að marka það sem oss hefur borist til eyrna frá leikurum á nýlokinni árshátíð bar einkennilega lítið á eftirliti með óvinum ríkisins þetta tiltekna kvöld. Þetta hreinlega getur ei verið satt, vjer neitum að trúa þessu - en vilji svo ótrúlega til að þetta sje satt er auðvitað bara heppni að ekki fór illa.
Auk þess neitum vjer að trúa því að Ívar Sívertsen hafi ekki sent neinn leikara fyrir sig á árshátíðina Glottir eins og fífl.
Ívar var á þessari árshátið!
Ég veit það því ég var að hlýja konunni hans á meðan. Ljómar upp
Leikarinn sem ég er með í vinnu hefur ekki sagt mér eitt aukatekið orð um árshátíðina. Hann ber við minnisleysi.
Hér er þá komið eitthvað til að rannsaka.
Voru óvinir ríkisins hugsanlega á árshátíðinni? Og byrluðu þeir fleiri leikurum einhvern óminnisvökva?
Ég hef minn leikara grunaðan um að hafa villst eitthvað, hann kom allavega heim snyrtilegur til fara, engin æla á skóm, auk þess sem hatturinn var... já eins og nýr úr kassanum.
Ívar var á þessari árshátið!
Ég veit það því ég var að hlýja konunni hans á meðan. Ljómar upp
Hrökklast afturábak og hrasar við
Sendi hann þá ekki leikara í sinn stað heldur kom sjálfur ? Í eigin persónu ?
Ég er ánægð með mína leikkonu, ég er viss um að það sem hún sleppir úr er ekki þess vert að vita. Ég ætla bara að hafa hana áfram. Ljómar upp

Sumir senda svokölluð vélmenni. Eini gallinn er sá að fjarstýringin drífur heldur stutt.
Ég er ánægð með mína leikkonu, ég er viss um að það sem hún sleppir úr er ekki þess vert að vita. Ég ætla bara að hafa hana áfram. Ljómar upp
Hm, sagði hún þér eitthvað um minn leikara?
Ég sendi mjög reffilegan leikara í þetta skiptið. Verst samt að hann er ekki kominn heim enn.
Ber að skilja þetta þannig að þið (Upprifinn og sjer í lagi Þarfagreinir) hafið enn ekkert frjett frá árshátíðinni ? Hrökklast afturábak og hrasar við
jú ég hef heyrt hitt og þetta en maður veit aldrei almennilega hverju maður á að trúa.
Regína virtist bara svo ánægð með leikkonuna sína að ég hélt að kannski væri eitthvað að marka það sem hún segði um fíflið sem ég sendi.
Minn sendi SMS um miðja nótt og sagðist vera kominn á klósettið á Rex sniffandi kókaín. Veit ekki alveg hvað skal halda um það.
Það er þá nokkuð ljóst að leikarinn þinn komst einhvern vegin yfir tímavjelina hann Vlad, því Rex hefur ekki verið til nema sem súkkulaðikex sl. 2 ár.
Það er þá nokkuð ljóst að leikarinn þinn komst einhvern vegin yfir tímavjelina hann Vlad, því Rex hefur ekki verið til nema sem súkkulaðikex sl. 2 ár.
Einmitt það sem mig grunaði - annað hvort það eða helvítið var bara að ljúga. Útiloka þó ekki að ölæði hafi eyðilagt dómgreind hana svona algjörlega.
Reyndar gæti hafa verið um að ræða klósett ofan á Rex súkkulaðikexi Leitar að öllu sem afsannað gæti tímavjelarþjófnað.
Já það gefur súkkulaðikexinu allt aðra merkingu og öllu skemmtilegri.Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ég er ánægð með mína leikkonu, ég er viss um að það sem hún sleppir úr er ekki þess vert að vita. Ég ætla bara að hafa hana áfram. Ljómar upp
Hm, sagði hún þér eitthvað um minn leikara?
Ef þú hittir einhvern tíma leikkonuna hennar Garbo ættirðu að spyrja hana spjörunum úr.

Skoða það.