Mér finnst alveg ómögulegt að ritstjórn sé nánast hætt að taka þátt í gáfulegum samræðum okkar hér á Gestapó. Það sama á við um að leika sér með okkur í sandkassanum. Þykjast þeir vera orðnir útskrifaðir af róluvellinum og kannski að komast í grunnskólann?
Ég vil benda þeim á að hér er skemmtilegast að vera.
Ég mælist til þess að ritstjórnarmeðlimir hunskist til að hætta að bora í nefið þarna á ritstjórnarskrifstofunni og komi út að leika!