Góðan og blessaðan daginn.
Rentonía mun vera nýja nafn mitt hér. Áður var ég Renton og eyddi miklum tíma hér í Baggalútíu fyrir nokkrum árum, en gat ómögulega munað lykilorðið mitt í dag. Svo ég ákvað að búa mér til nýjan aðgang.
Vona að ég gleymi ekki þessu lykilorði.
Ég einmitt bjóst ekki við því að nokkur myndi muna eftir mér.
Nýtt nafn OG nýtt kyn? Ungdómurinn í dag...
Vjer munum eftir Renton og bjóðum yður hjer með formlega velkomna til baka. Fóruð þjer í kynskiptiaðgerð eða er Renton líka kvenkynsorð ? Klórar sjer í höfðinu
Ah, þetta er semsagt sama kyn. Biðst ég forláts án afláts.
Reyndar mundi ég eftir Renton þegar ég skoðaði sniðið.
En Renton - ía, þú getur sent einkapóst á Vendihnapp og óskað eftir nýju lykilor'i, hann tekur að jafnaði vel í svoleiðis óskir.
Já halló aftur og gaman að sjá þig.
Ég mæli með einkapósti til takkans góða og að þú heitir áfram Renton.
Já þúúúú.Klórar sér í höfðinu
Ekki vera að ljúga stelpuskjátuna fulla um einhvern draug sem heitir Enter, hann hefur ekki sést hér í marga mánuði.
En velkomin aftur, Ég mundi alveg, bara miklu sniðugra að þykjast ekkert muna.
Vjer munum eftir Renton og bjóðum yður hjer með formlega velkomna til baka. Fóruð þjer í kynskiptiaðgerð eða er Renton líka kvenkynsorð ? Klórar sjer í höfðinu
Ég man líka - óljóst. Gat allavega tengt nafn við fés.
Annars er Renton nú bara eftirnafn, og getur því átt við um hvort kynið sem er - þó flestir tengi nafnið væntanlega við ákveðinn skoskan eiturlyfjaneytanda.
Mig rámar í þig. Velkomin aftur.
Hey, ég man eftir bassafantinum Renton, þú varst skemmtileg! Vonandi ertu það ennþá, það veitir ekki af hérna. Glottir lítið eitt