1)
Til að losna við auglýsingar er þessum reglum bætt við i Skrumvarann (AdBlockPro):
facebook.com#*(UIStandardFrame_SidebarAds)
facebook.com#*(adcolumn_wrapper)
2)
Til að losna við smettin á fólkinu sem þér kynnuð þekkja (en viljið sennilega ekki þekkja) er þessari reglu bætt við:
facebook.com#*(pymk)
3)
Njótið.
Þetta hefur vonandi ekki áhrif á veru mína hér... Titrar af skelfingu
Hrökklast afturábak og hrasar við
Þetta hljómar sem eitthvað stórhættulegt. Skrumvari hlýtur að gleypa allt skrum og er þar með skrumgleypir. Svona fikt getur því verið stórhættulegt, síðast þegar fiktað var við skrumgleypi sogaðist sá sem það gerði (Skabbi) ofan í klósett og var þar fastur í limbói vikum ef ekki mánuðum saman.
Hvað er þetta rauðlitaða?
Þetta eru töfraþulur. hlewagastiR er nefnilega seiðmaður (shaman).
Skrumvarinn (AdBlockPro) eyðir flestum auglýsingum og öðru skrumi (nema auðvitað skruminu hans Skabba, annars hefði þetta verið Skrumgleypir) af vefsíðum.
Auk þess getur maður kennt Skrumvaranum að fela fleiri leiðindi sem maður skilgreinir sjálfur.
Þetta rauðlitaða hér að ofan eru slíkar viðbótarreglur til að fóðra skrumvarann á. Það er tiltölulega einfalt ef maður kann á kött og pasta.
Ég nota þesa græju líka til að fela ógeðslega appelsínugula Baggalúts-bakgrunninn. Reyndar er kominn annar rauður í staðinn sem ég er ekki búinn að fela enda er hann ögn skárri.
Skrumvarinn virkar bara í Glóðartófu.
Er ég einn með gráa veggfóðrið?
Ég er með grátt veggfóður í þessum töluðu...
Þið hljótið að vera með fornar talna völvur - allt í svart-hvítu eða gráum blæ þar á milli