Gítar er mest töff jólagjöf sem ég hef fengið, peysa sem hefði passað betur í fataskápinn hjá ömmu minni var ekki sérstaklega töff gjöf (en samt gefin af góðum hug svo mér þótti voða vænt um hana).
Jólagjafir sem þú hefur gefið.
ég gaf strákunum mínum einhverntíman STIGA sleða.
Það þótti afskaplega töff á þeim tíma.
bók sem þú hefur lesið.
Margar töff ... t.d. Sólon Islandus e. Davíð frá Fagraskógi og Ævintýri Arthúrs Gordons Pym eftir nafna minn. Líka margar ótöff ... t.d. Casino Royale í íslenskri þýðingu.
Hljóðfæri
Trompet... verður ekki meira töff... Gambíska Gírafaeistnasekkjapíipan er ekkert sérlega töff... en áhugaverð.
jólalög
Silent night, Bodom night er virkilega töff, Heims um ból er alls ekki töff
Brækur
Tók eftir að bækur var einum 2 innleggjum fyrir ofan mig, ákvað að breyta lítillega
Svatar blúndu brækur eru dáldið töff. G-strengir eru það hinsvegar ekki.
Jólagjafir.
Eitthvað sem maður gerir sjálfur og gefur er töff. DVD diskar ekki.
Jólasmákökur.
Lakkrístoppar eru töff en finnskir pinnar eru ekki töff.
Jólatré.
æ, það var búið. Segjum bara gosdrykkir. Krossleggur fingurna og vonar að enginn hafi spurt um þá fyrr á þessum þræði.
Ikari warriors er töff, Call of duty er það ei.
Íþróttatölvuleikir.
Þarna lék einhvur á mig, lagði fram bardagatölvuleiki og strokaði þá svo út. Læt þetta standa eigi að síður.
Super Sprint var Töff (Reyndar bílaleikur en íþróttaleikir eru í eðli sínu ekki töff, og formúlan er jú skilgreint sem íþrótt). Decathlon ekki... helvítis stýripinnaeyðileggjandi drasl...
Ópaltegundir (sælgætið, ekki steinarnir).
Blár ópal er töff en rauður ekki. (Grænn ópal er mitt á milli)
Þök
Risþök með grasi ofan á eru töff. Flöt þök eru ekki töff.
Dagatöl.
Dagatöl með rammíslenskum landslagsmyndum, einkennandi fyrir hvern mánuð fyrir sig, og sem sýna einnig gömlu mánuðina eru töff. Jóladagatal sjónvarpsins er ekki töff.
Menntastofnanir
Framhaldsskólinn á Laugum er töff, Bifröst ekki.
Borðspil
Hörður Torfa er töff en Kolfinna Baldvins er ekki töff.
Birta
Litfagra sólarupprásarbirtan á miðjum vetri uppi á miðju landinu í miklum froststillum er töff. ♪♪♪Birta-ha, bíddeftir mér! ♪♪♪ er ekki töff.
Dagur í almannakinu (dagsetning, ekki fljótandi hátíðisdagar).