Oss vantar eftirfarandi hluti eigi síðar en strax í gær:
(A) Sprengiefni
(B) A.m.k. 100 m langar framlengingarsnúrur
(C) GPS-tæki sem virkar neðanjarðar
(D) Jarðgangabor
(E) Sög er sagað getur sundur stál
(F) Skurðgröfu
(G) Tjald
(H) Loftpressu
(I) Flutningabíla
(J) Segulstál
(K) Dieselrafstöð
(L) Vatnsdælu (til öryggis)
(M) Búnað til að trufla ýmiskonar eftirlits- og aðvörunarbúnað
(N) Loftbyssu, vatnsbyssu og baunabyssu
(O) Ljóskastara
(P) Nokkrar þyrlur
(Q) Þurrís
Þeir er geta útvegað svona búnað að hluta eða öllu leyti eru beðnir að hafa samband við forsetaembætti Baggalútíu eigi síðar en strax hjer í þræðinum.
Jæja Vlad minn, hvað ertu að bralla?
Vjer gleymdum að taka fram í upphafsinnlegginu að allar getgátur um tilgang þess að komast yfir hluti þá sem þar eru taldir upp eru afar illa sjeðar. Jafnframt munu nöfn þeirra er hlutina útvega eigi birtast opinberlega nema sjerstaklega verði óskað eftir því af þeim er í hlut eiga.
Nújæja.
Ég á engan þurrís en ég get útvegað þér blautan loga!
Hey Vlad... þetta sms var bara grín sko.
Ég held ég eigi Die hard safnið hér einhverstaðar, það eru margar ljómandi góðar hugmyndir um hvar hægt er að nálgast alla þessa hluti.
Oss vantar eftirfarandi hluti eigi síðar en strax í gær:
(A) Sprengiefni
(B) A.m.k. 100 m langar framlengingarsnúrur
(C) GPS-tæki sem virkar neðanjarðar
(D) Jarðgangabor
(E) Sög er sagað getur sundur stál
(F) Skurðgröfu
(G) Tjald
(H) Loftpressu
(I) Flutningabíla
(J) Segulstál
(K) Dieselrafstöð
(L) Vatnsdælu (til öryggis)
(M) Búnað til að trufla ýmiskonar eftirlits- og aðvörunarbúnað
(N) Loftbyssu, vatnsbyssu og baunabyssu
(O) Ljóskastara
(P) Nokkrar þyrlur
(Q) Þurrís
Þeir er geta útvegað svona búnað að hluta eða öllu leyti eru beðnir að hafa samband við forsetaembætti Baggalútíu eigi síðar en strax hjer í þræðinum.
?
Ég get útvegað það, sem fellur undir liði B, G, J, L og O. Fer að róta í geymslunni
Fer að búa til baunabyssu
Hey ég er með lyklana að skurðgröfunni á byggingasvæðinu.
Ég held ég eigi jarðgangabor niðri í geymslu. Svo ætti ekki að vera erfitt að redda nokkrum flugeldum sem hægt væri að sprengja eitthvað með.
Ég á helling af segulstálum þú getur fengið þau öll og verður ekki að skila neinum aftur nema því með Mónu Lísu alsberi sem ég nota til að hengja alla reykningana á á ískápnum . ég á líka allar þessar byssur sem spurt er eftir enn ekkert leifi áþær . Ég gæti kent þér á þær . Ég á líka vasaljós með mynd af forsetakrúttinu okkar sem gæti vyrkað sem ljóskastari .
Er eliptonið búið?
Oss vantar eftirfarandi hluti eigi síðar en strax í gær:
(A) Sprengiefni Ef Kjarni dugar, þá er því hér með reddað.
(B) A.m.k. 100 m langar framlengingarsnúrur Ef forsetaembættið getur útvegað einhvern til að skrúfa kló og innstungu þá er því reddað.
(C) GPS-tæki sem virkar neðanjarðar Um leið og gps hnöttununum hefur verið komið fyrir neðanjarðar þá er því reddað
(D) Jarðgangabor Offari mun geta reddað slíkum lítið notuðum.
(E) Sög er sagað getur sundur stál Reddað
(F) Skurðgröfu Reddað
(G) Tjald Reddað en himininn er orðinn frekar slakur.
(H) Loftpressu Reddað.
(I) Flutningabíla Reddað
(J) Segulstál Gísli sagðist vera með það á hreinu
(K) Dieselrafstöð Reddað en einnig er hægt að útvega bensínrafstöð á sama stað.
(L) Vatnsdælu (til öryggis) Reddað
(M) Búnað til að trufla ýmiskonar eftirlits- og aðvörunarbúnað Reddað ef aðvörunar og eftirlitsbúnaðurinn eru varðmenn þá geta einhverjar gestapíur tekið að sér að vera fáklæddar eða í versta falli skoruprúðar.
(N) Loftbyssu, vatnsbyssu og baunabyssu Reddað reddað reddað.
(O) Ljóskastara hvað stóran?
(P) Nokkrar þyrlur Hver þarf lyftigetan að vera?
(Q) Þurrís Set bara slatta af ísmolum út á snúru og því verður reddað í fátækraþerrinum sem er að bresta á.
Þeir er geta útvegað svona búnað að hluta eða öllu leyti eru beðnir að hafa samband við forsetaembætti Baggalútíu eigi síðar en strax hjer í þræðinum.
Til hvers þarftu annars þetta dót úr geymslunni minni.
(Q) Þurrís Set bara slatta af ísmolum út á snúru og því verður reddað í fátækraþerrinum sem er að bresta á.
Ég á líka fyrirtaks þurrkara, lítið mál að smella ísmolunum inn í hann!
Oss vantar eftirfarandi hluti eigi síðar en strax í gær:
(M) Búnað til að trufla ýmiskonar eftirlits- og aðvörunarbúnað
Þeir er geta útvegað svona búnað að hluta eða öllu leyti eru beðnir að hafa samband við forsetaembætti Baggalútíu eigi síðar en strax hjer í þræðinum.
Í góðu lagi. (Þ.e. ef útskýringu er óskað, bíð ég sjálfa mig fram og ég er í góðu lagi)
Ég tala í eftirlits- og aðvörunarbúnaðinn þá truflast hann eins og skot. Ljómar upp, truflast og truflar
(Q) Þurrís Set bara slatta af ísmolum út á snúru og því verður reddað í fátækraþerrinum sem er að bresta á.
Ég á líka fyrirtaks þurrkara, lítið mál að smella ísmolunum inn í hann!
Já eða bara á ofninn.Starir þegjandi út í loftið
Sér Hvæsi ekki um næstsíðasta liðinn?
En hvurslags forsetaembætti er það sem getur ekki einusinni reddað sér framlengingarsnúru?