Ég kláraði saltketið og baunasúpuna sem ég eldaði um síðustu helgi. Þetta batnaði með hvurjum degi.
Jahá nú er hver biti nýttur. Hangikjetið, kartöflurnar, grænu baunirnar og jafningurinn frá því um nýliðna helgi er nú sett í tartalettur og hefur aldrei smakkast eins vel. Þetta snæddi ég í gærkveldi og mun endurtaka matseldina nú í hádeginu með aðstoð örbylgjuofns.
Eitthvað kjötfarsgums. Ekki búinn að útfæra 100%
Pulsur skornar niður í bita og skellt saman við núðlusúpu... mig langar í hangikjet... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég veit það ekki ennþá, það fer eftir því hvað mér verður boðið á þeim bæjum sem ég á eftir að fara á í kvöld.
Skata í hádeginu og það sem eftir lifir dags nart í smákökur með hvítöli.
Súpa og brauð.
Skatan var hins vegar í hádeginu.
Sleikir út um
Soðinn saltfiskur með hömsum og kartöflum. Þar með höfum vér sett markið með góðan mat á þræði þessum. Burt með skötutalið.
Vá hvað var ekki í matinn segi ég nú bara, var að koma úr svaka matarveislu hjá ömmu og afa! Ég fékk mér meðal annars laxapaté, graflax, kjúkling, sjávarréttasinfoníu (sem inniheldur allt mögulegt), marineraðan þorsk, eitthvað hrátt kjöt sem er marinerað eða grafið á einhvern hátt og borðað með osti og sultu og margt margt fleira. Ákvað að halda mig við forréttina þar sem það verður mikið kjötát næstu daga. Djö var þetta gott samt! Nammi namm. Ljómar upp
pULSU brauð með pulsu í
Það síðasta sem ég át var hangiket.
nema Nóa konfekt teljist með, já og kakó með leyniefni.
ég var að klára smákökurnar sem móðir mín sendi mér... mömmuk0kur eru æði. Ljómar upp. Fattar svo að þær eru búnar og dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Skinka, rauðrófusallad, ofnbakökuð rófustappa og sömuleiðis gulróta-hrisgrjónastappa og léttsöltuð síka (fiskur). Svona lagað er borðað hér á jólunum.
Hangikét verður á morgun í jólaboðinu fyrir fjölskylduvini.