Hvar sást þú að Árni Matt væri antí-kristur?
Rétt fyrir jól.
Hvenær telur þú að það sé besti tíminn til að lýsa yfir hugmyndafræðilegu gjaldþroti kirkjunnar?
Handlaginn handrukkari úr Höfnunum.
Hver kemur til með að flengja jólaandann í þig?
Ég nota bara flugelda.
Hvernig sagðistu ætla að elda jólasteikina?
Nú, með armbandsúri.
Og hvernig hafðir þú hugsað þér að hringja heim?
Það er ekki nógu jólalegt.
Af hveju ertu með sinnep í eyrunum?
Þú hefur bara ekki fundið réttu dyrnar.
Ætlaðir þú ekki að bíða eftir mér í corselettinu á herbergi 109 á Loftleiðum?
Ég geri engan mannamun.
Nei, sérðu þessar tvær ... önnur svaka grönn og sæt, en hin eins og Gilitrutt. Er þér sama þótt ég fái þessa sætu?
Jú víst! Ég sá það í Séð og heyrt!
Leppalúði myndi aldrei halda framhjá Grýlu?
Ég tók bara jólalán hjá Hagkaupum.
Hvernig hafðir þú hugsað þér að borga fyrir þessa bollasúpu?
Leitið og þér munuð finna.
Hafið þér séð orðabelg vorn?
Skríkjandi skapillir smáfuglar.
Hvernig reyndist Upprifinn svo vera þegar þú náðir að kynnast honum almennilega?
Það er ekki satt. Hann var svona þegar ég fékk hann.
Hvað er þetta, ertu búinn að naga gat á sokkinn þinn?
Það hefur engum tekist það enn svo ég viti til.
Heldur þú að það gengi eitthvað ef ég fleygði mér á hnén og grátbæði þig að samrekkja mér?
Reyndar en þá var ég líka ungur og kærulaus.
Þú hafðir nú alltaf dálæti af því að kippa í kallinn, ekki satt?
Þetta hefur rúið mig inn að beini.
Af hverju vitlu ekki spila við mig ólsen-ólsen lengur?
Það logar.