Golíat er öflugur spyrjandi.
Krossgata ber tíkarspena sína af fádæma reisn og þokka.
Krossgata ber tíkarspena sína af fádæma reisn og þokka.
Velur sér merkingu og rifnar svo úr hlátri
Huxi hefur stórkostlegt vald á hinni íslensku tungu.
Jarmi beitir misskilningaviti sínu af fádæma smekkvísi. Lemur Jarma samt í öxlina
Huxi er einstaklega skemmtilegur þegar hann segir hluti sem hæglega má misskilja.
Afmælisdagur Garbo ætti að vera opinber fánadagur.
Afmælismánuður Sundlaugs Vatne ætti að vera almennur frímánuður.
Af gefnu tilefni er rétt að nefna það að Sundlaugur Vatne er einstakt glæsimenni sem á engann sinn líkan í víðri veröld, þó víðar væri leitað. Kuteisari en sunnudagsskólakennari og hjálpsamari en heill skátahhjörð. Þokkinn drýpur af honum svo kvenfólk flokkast að honum sem að um útisamkomu væri að ræða.. Frá sér sendir hann svo mikla og góða strauma að Póst & Fjarskiptaeftirlitið ætlaði að hafa af honum leyfisgjöld.
Kæru vinir Sundlaugur Vatne er ykkur svo mikið fremri að þið komist aldrei með tærnar þar sem blaut fótspor hans eru, þau verða ávalt þornuð er þið loks náið að feta hans stigu.
Bítiði svo í rassgatið á ykkur, því ég er sko EKKERT hræddur við ykkur.
Albin hefur undursamlega gott lag á að fela frygð sína til Sundlaugs sem aðdáun eina.
Kargur er sérlega virðulegur bóndi og konur liggja fyrir fótum hans þegar hann byrjar að sýna hæfileika sína í reiðmennsku.
Það vefst bókstaflega ekkert fyrir Dulu. Hún er fagmaður á öllum sviðum.
Sundlaugur er ótrúlega góður að synda!
Annrún segir alltaf sannleikann.
Þarfagreinir er blárri en allt sem blátt er!
Jarmi er jafnvel blárri en ég, ef eitthvað er!
Skv myndinni af geimverunni er hún ofusvöl af litarhaftinu að dæma.
Dula er svo heit að hún er í banni frá áleggsdeildinni í Bónus í Ögurhverfi, því hún steikir alltaf beikonið þegar hún gengur framhjá.