Maður segir pylsur ef maður ætlar að halda fjarlægð við sletturnar. Eða það segi ég. Gúllas-kóngurinn sjálfur!
Ps. ég ætla líka að drepa hvurslags með gúllasinu.
Þú hefðir ekki þorað fyrir þitt litla líf ef ég hefði fengið mér það vopn sem ég ætlaði upphaflega að nota, sænska kálböggla.
Þannig að þú þorir ekki að svara fyrir þig á meðan að kálbögglarnir eru fjarri góðu gamni?
Jú ég hleð minni valslöngvuna með kálbögglum. Vertu svo ekki með neitt bögg þegar ég þruma þeim í þig.
Þú veist vel að ég ætla að hella gúllasinu yfir mig. Svo þú þorir ekki að skjóta á mig. Þannig er það bara og óþarfi að ræða það frekar. Buxnaslöngvi!
Ég verð með. Vopnið er tíminn.
Uuuuuuu, sumarið er tíminn. Hélt að allir vissu það.
Skvettir gúllasinu, því hann á það jú
Gamla dagblaðið Tíminn? Maður blaðaði stundum í Tímanum hjá afa heitnum.
Örlygsstaðabardagi X
Stjórnandi : ég.
Lokað verður fyrir skráningar 21. nóvember klukkan 1900 að íslenskum tíma.
Skráðir eru:
hvurslags - valslöngva sem skýtur öðrum valslöngvum
Jarmi - Norskt gúllas
Anna Panna - banvænar danskar pulsur
Golíat - tunnurnar allar eða ein.
Fergesji - sádlo
Þarfagreinir - asnakjálki.
Útvarpsstjóri - lýsi með sítrónu
Nermal - laufabrauðskaka.
Regína - tíminn
Geimveran - hákarlatannavopn
Skráningu lýkur föstudaginn 21. nóvember klukkan 1900 að íslenskum tíma.
Lotu 1 lýkur laugardaginn 22. nóvember klukkan 1900 að íslenskum tíma, eða þegar allir hafa skilað inn aðgerðum
Gusar gúllasi á vel valda einstaklinga
Lemur nokkra illa valda einstaklinga með asnakjálkanum
Skráningu er lokið. Lotu 1 lýkur klukkan 19:00 í kvöld að íslenskum tíma eða þegar allir hafa skilað inn aðgerðum. Ég mun reka á eftir fólki komi það ekki með aðgerðir.
Örlygsstaðabardagi X
Stjórnandi : ég.
Úrslit lotu eitt:
hvurslags bombar á Jarma - lifir
Jarmi reynir að drepa Golíat og er drepinn af hvurslagsi - deyr
Anna Panna reynir að drepa Fergesja - deyr
Golíat drepur sig - lifir
Fergesji drepur sig - lifir
Þarfagreinir hendir asnakjálkanum upp í loftið og grípur hann aftur - lifir
Útvarpsstjóri reynir að drepa Fergesja - deyr
Nermal reynir að drepa Golíat - deyr
Regína sest niður og tíminn líður - lifir
Geimveran drepur sig - deyr
Eftirlifendur:
Hvurslags
Golíat
Fergesji
Þarfagreinir
Regína
Afsakið ekki miklar lýsingar ég er í tímaþröng. Síðasti séns að senda fyrir lotu 2 er 19:00 , íslenskum tíma á morgun.
Ég held að hvurslags muni næst reyna að drepa Þarfagreini.
Er hann gulur úlfur í blárri sauðagæru? Er það það sem þú ert að reyna að segja?
Hann er a.m.k. að þykjast vera það.
Heldurðu að einhver leggi í Golíat?
Ég gerði það síðast. Það fór ekki vel.
Ég hugsa að þeir Fergesji muni reyna við hvorn annan.
Það mun örugglega enginn leggja í mig.