Bretar eru bestu skinn,
banka ljúft í vora kinn.
Í Lottóinu vísast vinn.
Veturinn er bráttbú inn.
Ríkis- áfram situr -stjórnin.
Hér er fullgróflega vikið frá gnýstuðlareglum, st- skal ekki stuðla við si- og er það óumdeilt. Kannski ættirðu heldur að láta hana standa, stjórnina.
Rétt hjá Pó. Þess fyrir utan inniheldur síðasti bragliður í ljóðlínu hórkarls tvö atkvæði, en ekki eitt (í fullyrðinga- og öfugmælamótum verður aftasti bragliður í hverri línu að stýfður (aðeins eitt atkvæði að lengd)). Til nánari útskýringar, þá eiga kvæðin að vera samhend.
Skrifum nýja línu, sem uppfyllir allar reglur.
---
Ennþá ríkis- stendur stjórn.
Ennþá ríkis- stendur stjórn,
og stóra færir okkur fórn.
-eytandi er Bubbi bjórn-
Ennþá ríkis- stendur stjórn,
og stóra færir okkur fórn.
-eytandi er Bubbi bjórn-
Betur ekkert rímar við stjórn en fórn. Brýtur allar reglur, strunsar út af sviðinu en kemur strax til baka.
Það rímar ekkert við stjórn nema fórn og einhver bullorð krakkar mínir. Vel leyst hjá hvurslagsi.
Reynum aftur:
Ríkisstjórnin stendur enn.
Já, þarna gætti ég ekki að því að láta línuna enda á orði sem hægt er að ríma við. Það er víst margt sem þarf að huga að.
Ríkisstjórnin stendur enn.
Stúlkur nefnast einnig menn.
Ríkisstjórnin stendur enn.
Í stríði sjaldan deyja menn.
Já, þarna gætti ég ekki að því að láta línuna enda á orði sem hægt er að ríma við. Það er víst margt sem þarf að huga að.
Ríkisstjórnin stendur enn.
Stúlkur nefnast einnig menn.
Einhverjir hártogarar gætu nú sett út á þetta, en ojæja.
Ríkisstjórnin stendur enn.
Stúlkur nefnast einnig menn.
Í tónlist slæmur Gould var Glenn.
Ríkisstjórnin stendur enn.
Stúlkur nefnast einnig menn.
Í tónlist slæmur Gould var Glenn.
gleðjast Íslendingar senn.
Ríkisstjórnin stendur enn.
Í stríði sjaldan deyja menn.
Allir hafa örlög þrenn.
Það er prýðilegt að hafa tvær útgáfur af þessu. Ljómar upp
Ríkisstjórnin stendur enn.
Í stríði sjaldan deyja menn.
Allir hafa örlög þrenn.
Ætíð ég af hatri brenn.
Atómljóðin eru kúl.
Ásdís Rán er ljót og fúl.
Að lyfta fis er puð og púl.
Atómljóðin eru kúl.
Ásdís Rán er ljót og fúl.
Að lyfta fis er puð og púl.
Póar eru -asnar, múl-.
Sannleikskorn oft segir Geir.