— GESTAPÓ —
Ráð til Nýliða
» Gestapó   » Efst á baugi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 22/4/05 11:24

Hér koma uppfærð ráð til Nýliða:

Góðar reglur til að fylgja:

1- Stafsetning og málfar skiptir miklu máli, hér ber að vanda sig. Hér er meiri áhersla lögð á gott málfar en á flestum öðrum spjallborðum.
2- Passa sig á að hafa í heiðri almennar umgengisreglur, aðgát skal höfð í nærveru sálar, orðlýti og níð ber að varast.
3- Gott er að kynna sig í upphafi, menn fá yfirleitt góðar móttökur hérna, sérstaklega ef menn hafa í heiðri ofangreind atriði (sjá Vér ánetjaðir).
4- Félagsrit skulu vera vönduð og vel hugsuð, léleg félagsrit fara illa með mannorðið, sjaldan skal nota orð annarra í félagsriti nema geta heimilda.
5- Gott er að nota Skilaboð ef nýliði er í vafa um eitthvað, flestir Heimavarnaliðar taka því vel ef leitað er til þeirra.
6- Gott er að spá aðeins í það hvar nýir þræðir eiga að birtast, kveðskapur á t.d. hvergi heima nema í kveðskapnum, frumsamið helst ekkert annað.
7- Fyrst ég er að tala um kveðskap, þá má benda á www.rimur.is í sambandi við reglur um kveðskap.
8- Aðalatriðið er þó að hafa gaman af því að vera hér, anda rólega ef einhver pirrar þig og sleppa þá bara að svara því, því hér er nóg af þráðum til að svara.
9- Já, ekki má gleyma að tvípunktar og svigi lokast og annað slíkt er illa séð hér
10- Halda skyldi greinarmerkjafjölda í lágmarki. ,,Fleiri upphrópunarmerki en eitt gera ekki neitt" sagði faðir hans SlipknotFan13 alltaf.

Um breytingar á skrifum annarra og þínum skrifum:

Regla: Þegar verið er að vitna í skrif annarra, er bannað að breyta eða falsa þau skrif, þ.e. leggja mönnum orð í munn.
Leiðbeining: Einnig er ekki mælt með því að breyta eigin skrifum eftir á, sérstaklega ef mörg svör hafa komið á eftir sem krefjast þess að samhengið verði að haldast.

Efst á síðunni til hægri má sjá nokkur atriði:

Gestapó er mengi svokallaða „spjallsvæða“ sem þú ert staddur á núna og eru eftirtalin spjallsvæði hér: Almennt spjall, Efst á baugi, Vjer ánetjaðir, Baggalútía, Undirheimar, Kveðist á, Dægurmál, lágmenning og listir, Vísindaakademía Baggalúts, Sögur, gátur, leikir og dægradvöl, Lygilega vinsælir leikir, Fyrirspurnir, Umvandanir, ábendingar, tilmæli og Sorpminjasafnið. (sjá neðar til útskýringar á þessum spjallsvæðum).
Hvert „spjallsvæði “inniheldur gríðarlegt magn af „spjallþráðum“ sem hver um sig er einstakur og skemmtilegur.

Athvarf yðar er svæði þar sem upplýsingar um þig koma fram ásamt nýjasta félagsriti þínu.

Ritstörf yðar er svæði þar sem þú býrð til, breytir og eyðir nýjum félagsritum (sjá neðar, upplýsingar um félagsrit).

Niðurskipan: Þar skráirðu niður ýmsar upplýsingar um þig sem munu síðan birtast í Athvarfi þínu. Þar geturðu meðal annars sett inn mynd af þér og sett inn undirskrift sem birtist við öll Innlegg.

Póststöð er svæði þar sem þú getur lesið og sent póst til og frá öðrum einstaklingum innan Gestapó.

Félagsrit er svæði þar sem þú getur skoðað þau félagsrit sem búin hafa verið til.

Heimavarnalið er svæði þar sem þú sérð hverjir Gestapóarnir eru.

Útför er útskráning af Gestapó.

Spjallsvæðin eru:

Almennt spjall (Skynsamlegar, rökvísar og dægrastyttandi umræður um lífið og jafnvel tilveruna.): Þetta er frekar laust í reipinu, nánast allt gengur hér, nema það sem á að vera á hinum svæðunum.

Efst á baugi (Allt slúður og umræður um það sem efst er á baugi hverju sinni) Hér er ekki óalgengt að fólk ræði um það sem hæst ber hverju sinni. Hér má jafnvel tala um stjórnmál, jafnréttismál og annað sem getur orðið óþægilega erfitt. Samsæriskenningar vel þegnar.

Vjer ánetjaðir (Kynningar, rafmæli, kveðjuteiti, myndbreytingar, andlát og fermingar gestapóa) Þetta segir sig sjálft. Hér eiga nýliðar að kynna sig.

Baggalútía (Hin alltumlykjandi útópía fastagesta Baggalúts) Merkilegt samfélag. Nauðsynlegt er að lesa nokkra þræði til að komast inn í tíðarandan þar áður en þú byrjar að babla.

Undirheimar (Skuggaveröld Baggalútíu): Þorirðu, farðu varlega. Hér ráða árar og skuggaverur ríkjum.

Kveðist á (Hér er allt látið flakka, samkvæmt ströngustu reglum bragfræðinnar þó): Kvæði, rímur, vísur. Margir þráðanna krefjast þess að fylgt sé keðju, lestu þig til og áttaðu þig á reglunum. Bragfræði nauðsynleg á langflestum þráðunum, sjá rimur.is og heimskringla.net en einnig er bragfræðiþráður til að fá leiðbeiningar.

Dægurmál, lágmenning og listir (Viltu ræða tónlist, kvikmyndir eða jafnvel bókmenntir? Þetta er staðurinn): Lítið meir að segja um það.

Vísindaakademía Baggalúts (Vísindi, framfarir, uppfyndingar og tilraunir - með ofuráherslu á stjarnvísi og kóbalt): Allar fræðigreinar og rökfræðiþrautir stundaðar hér.

Sögur, gátur, leikir og dægradvöl (Kannt þú leik sem hresst gæti upp á hversdag annarra lesenda? Láttu hann flakka): Alls kyns orðaleikir og dægradvöl í gangi hér, ef þeir verða lygilega vinsælir, þá flytjast þeir inn á næsta svæði.

Lygilega vinsælir leikir (Leikir, þrautir og annað tilgangslítið dútl sem notið hefur linnulítilla vinsælda):

Fyrirspurnir (Hér má beina gáfulegum fyrirspurnum til ritstjórnar): Það er ekkert víst að þeir svari þér, en það er um að gera að reyna, því sá heiður mælist í kílóbrosum.

Umvandanir, ábendingar, tilmæli (Allt sem tengist tæknilegum vandkvæðum, útliti og notkun vefsins - annað ekki): Segir sig að mestu sjálft.

Sorpminjasafnið
(Gamlar umræður sem enginn nennir lengur að lesa. Kjörlendi grúskara og nörda). Ef þú villist inn á þetta, ekki búast við að koma heil(l) til baka.

Um Félagsrit

Félagsrit eru ákveðin leið til að koma ýmsu á framfæri.

Leiðbeiningar Ritstjórnar eru svona:

Ritstjórn mælti:

* Félagsrit skulu vera fræðandi, skemmtileg og innihaldsrík.
* Félagsrit skulu ekki innihalda blaður, orðagjálfur, tittlingaskít ellegar argaþras.
* Félagsrit skulu vera höfundi sínum til sóma.

Áður hef ég vikið að því að félagsrit skuli ekki innihalda skrif annarra, en það er mín persónulega skoðun. Skrifið eitthvað sem skiptir ykkur máli, leggið vinnu í það og hugsið áður en þið sendið hvort þetta eigi ekki frekar heima sem þráður.

Hér er gömul umræða um Félagsrit sem ég fann og þar sjáið þið að ekki eru allir sammála um hvað Félagsrit snúast.

Annars skiptast félagsrit upp í eftirtalda flokka og fer hér á eftir mín skoðun á því hvað eigi að fara í hvern flokk:

Dagbók: Gerðist eitthvað merkilegt hjá þér sem þú vilt koma á framfæri, varstu óheppin(n), var þetta frábær dagur, varstu brottnumin(n) af geimverum, þróaðirðu nýja leið til að kljúfa Kóbalt eða fórstu í tímaferðalag? Nánast allt gengur hér.

Gagnrýni: Hér má koma með allt sem gagnrýnisvert er og gefa því stjörnur. Horfðirðu á bíómynd sem kom þér á óvart? Ertu ósátt(ur) við nágrannan, varstu að hlusta á hinn frábæraBaggalútsdisk eða á tónleikum hjá þeim? Ertu gagnrýnin(n) á eitthvað? Láttu það flakka.

Sálmur: Lumarðu á góðum sálm, kvæði, rímu, atómljóði eða söngtexta sem þú vilt sína öðrum? Láttu það eftir þér.

Saga: Kanntu að segja sögu, sanna eða skáldaða? Gamansögur eru vinsælar og einn sá vinsælasti í bransanum er hann Sundlaugur Vatne. Lumarðu á smásögu? Láttu vaða.

Pistlingur: Er eitthvað sem liggur þér á hjarta, hefurðu ákveðnar skoðanir á hlutum og málefnum, langar þig að fræða okkur um einhverja fræðigrein eða áhugamál þitt? Hér er lag að koma með það.


Reglur Gestapó um hu**.is :

1) Alldrei, undir nokkrum kringumstæðum skal vitnað í vefrit sem byrjar á hu og endar á .is
2) Alldrei skal taka sér málfar þess vefrits sér til fyrirmyndar.
3) Alldrei og ég segi alldrei, skal víkja frá reglu 1 og 2.
4) Alldrei skal hugsandi maður/kona...manneskja... fara á ofarnefnt vefrit.
5) Alldrei nokkurntíman skal víkja frá reglu 4 eða 3
6) Alldrei skal efast um að þessar reglur gildi hér á Gestapó
7) Regla 7 segir: „Allar reglurnar hér að ofan eru rangar“
8) Regla 8 segir: „Regla 7 fer með fleipur“
9) Allar reglur hér að ofan segja sannleikann eins og Gestapó vill hafa það, nema regla 7.

Friðargæsluliðar:

Hér má sjá hverjir eru/voru Friðargæsluliðar... ef einhverjum er misboðið vegna skrifa hér á Gestapóa þá má leita til þeirra... einnig til að fá upplýsingar um ýmislegt annað (brugg og skonsu-uppskriftir og annað sem skiptir máli)...

Friðargæsluliðar hafa völd til að eyða og breyta innleggjum hér á Gestapó. Þeir varast þó að nota það, nema farið sé yfir strikið í kjaftbrúk og níði um nafngreindar persónur.

Mér skilst að á báðum leikjasvæðunum séu Jóakim, Sverfill og Ívar einráðir...
Þarfagreinir er víst friðargæsluliði á Baggalútíu... veit ekki meir.

Ein leiðbeining:

Það eru ekki allir sammála um það, en ég legg til að menn varist að blanda saman hinum svokölluðu raunheimum við þetta samfélag sem er hér. Að gefa upp nafn og upplýsingar um aðra Gestapóa hér, finnst mér að ætti að vera brottrekstrarsök.

Um útlit, galla og annað tengt þróun Gestapó, skal bent á svæðið Umvandanir, ábendingar, tilmæli. Þar má einnig finna leiðbeiningar varðandi myndir notenda.

Að lokum:

Saga Gestapó er löng, ef þú hefur áhuga á því að vita hvernig þetta byrjaði og þróaðistþá vil ég benda á þessi félagsrit:
Sagan I, Sagan II, Sagan III og Sagan IV

Síðast uppfært 17 febrúar 2006.

P.S. sendið mér línu ef þið hafið eitthvað um þetta að athuga eða viljið frekari upplýsingar um það hvernig þetta virkar allt saman hérna.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 22/4/05 13:29

Einnig skal bera óttablandna virðingu fyrir konungi vorum og drottningu!

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kífinn 5/11/08 17:14

Þetta mun ég taka til skoðunar, prýðileg ráð. Vil ég benda á að tenglar fyrir sögu I-IV eru gagnslausir í MF vafra (nema sagan sé i raun síða sem ekki finnist og finnst mér hún þá lítt merkileg)

Takk fyrir áheyrnina.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 5/11/08 17:25

404 Error error. Not Found.

Linkarnir á sögu gestapó eru horfnir! ‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 5/11/08 17:46

Best er að skoða listann yfir gömul félagsrit Skabba, hann lumar á Sögu sannleikans þar í nokkrum bindum.

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 5/11/08 18:28

Hey... þetta átti að vera lokaður þráður...‹Glottir eins og fífl›

To live outside the law, you must be honest.
LOKAÐ
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: