Allt í góðu. Þetta var ágætlega kveðið.
Tálgar hnífur hart og vel
hnýsinn er hann eigi
Sker hann undir skinn og skel
skáldsins rímnavegi
Hananú og helvítis
hamagangur og læti
Kveða kann um ákavítis
kraft sem ágæti
Ágætur sem og endranær
er'ann Áki Víti
Vínandinn, hann rennur vær
víð'um Áka í flýti
Megi þú og þínir
þrauka yfirleitt
Slóðann sá þér sýnir
sem engan hefur deytt
Deytt hef mína dauðu lús
dáin er og grafin
Bergi nú mitt bland og bús
brjóstbirtan og safinn
Ærandi, nærandi, ávöxtur er
ávalur mikill af safa
Graskerið telja gjarnan ber
til Guðanna gjafa
Gjafa gengið morgni til
góðlátlegt var myrkrið
Frost og funi um nóttubil
fannarbjart var rökkrið
Rökkrið ill'um sumar sést
sérstakleg'í júní
Hefur af myrkri meira frést
í myndum George Clooney
Rétt er að geta þess að eigi höfum vér kannað hve mikið er um myrkur í myndum með George Clooney svo ef fullyrðingin að ofan er röng biðjumst vér afsökunar
Clooney einn halur heitir,
Hollywoods sonur.
Töfrum sínum títt hann beitir
að tæla konur.
Typpið er orðið tótal pína
tækjum háð og pillum
Svíþjóðarinnar sogmaskína
"Suregrip" reddar tillum
Fínir folar
fylja
Mínir molar
mylja
Mylja molar
mínir
Fylja folar
fínir
(það var nú eiginlega ekki hægt að sleppa þessu)
Fínir eru fíflar hér
fagurgulir um sumardag
fögrum hefur frá mér
Fíbblagangur stolið brag
Eigi illa meint
Hrappur svika hreykir sér
hróplega á Valda kvæði
Frjótt má þakka Fuckov þér
fagurt vísnaflæði
Vísnaflæði vort þrjóta
vonda laðar að
gegn höfundarrétti hiklaust brjóta
hugsið ykkur það !
Ekkert að óttast, vér erum eigi að íhuga að kæra yður til Stefs
Það er eigi þolandi,
þegar rænt er ljóðum.
Vladimir er volandi,
veltist um með hljóðum.
Ekki illa meint Vlad, þetta bara kom.
Hljóðum skrefum læðast létt
lögfræðingar knáir
Stefna! kæra! staflast þétt
Stefsreikningar háir