... (eru endur annars með herðar?)
Er þetta lögleg Tinnaspurning? Starir þegjandi út í loftið
Vor ástkæri söngvari Roxy Music er með þetta rétt.
Dæsir hálf-svekktur yfir að öndin hafi orðið vð tilmælunum - þar fór tækifæri til að agnúast út í friðargæsluna a.m.k. fram að jólum.
Ljómar upp Hættum nú þessu orðaskaki og snúum okkur af fullri alvöru að Tinnaleiknum.
Á hvaða Tinnabókarkápum má líta látið fólk?
Vindlum Faraós.
Rétt er það en ekki er allt upp talið.
Bezt að gefa eina vísbendingu: Það eru 3 bókarkápur.
ég tók bara ekki eftir fleirtölunni í spurningunni
en ef ég man rétt erum við að tala um Sólhofið og Kristalskúrurnar til viðbótar.
Fangana í sólhofinu, já. Ég man ekki eftir látinni persónu utan á Sjö kraftmiklum kristalkúlum.
Var ekki m.a. mynd af málverki er sýndi forföður Kolbeins kafteins á Leyndardómi Einhyrningsins ? Eða telst það ekki með ?
Ó, jú. Það telst nefnilega með.
Spurning hver á réttinn núna. Uppi svaraði fleiri spurningum en forsetinn "fattaði trikkið".
Eigum við ekki bara að sjá hvor verður á undan?
nei enda var ég að rugla. Fannst að Raskar Kapar sæist utan á bókinni.
Þá er ég krúkk nema að þú sért að tala um málverkið af Kjálkabít utan á Einhyrningnum.
Forsetinn fattaði Trikkið sennilega á undan mér svo að hann á þá bara réttinn.
Í einni bókanna er Kolbeinn kafteinn um tíma með krókódíla á heilanum og talar um heilaga krókódíla, kremkexjetandi krókódíla, krílótta og dílótta krókódíla o.s.frv. í stað marglyttna, marhnúta o.þ.h. (auk þess nefnir hann samhliða krókódílunum m.a. krambúleraða krumma). Í hvaða bók er þetta og í tengslum við hvaða atburð talar hann sjerlega mikið um krókódíla ?
Var það ekki í Pikkarónunum þegar hann þurfti að þvælast í gegnum frumskóga suður Ameríku með uppreisnarmönnum Alkasars hershöfðingja?
Man þetta ekkien á að vita þetta
slær höfðinu í borðið og reynir að rifja upp
Eigi eru þau svör er fram hafa komið rjett.
Í þeirri bók var nú Kolbeinn ekki kominn til sögunnar. Ég ætla að giska á Krabbinn með gylltu klærnar?