Grúví er hún Gunna mín
geðveik dúndur snót.
Konan væri hún vísast mín
væri hún ekki ljót.
Ljót er gamla geitinn
grálynd frek og vilt
Sækir í rósa reitinn
rætin og alveg tryllt.
Starir þegjandi út í loftið
Tryllast konu allar er,
af mér spjarir falla
ef þær fengju fang af mér
fúlar yrðu valla.
Valla gæslan göfug er
gæsir þangað sækja.
í sundlauginni buslar ber
brjóstamikil dækja.
dækjur flestar á mig ætla
ekki þær nein leifa grið
fyrr en úr mér fer að vætla
flóðið tára að kvenna sið.
Siða mætti suma til
sér í lagi Upprifinn.
Hann er svona hér um bil
hætulega óþrifinn.
Inni vil ei vera´ í dag
veðrið það er æði.
Duglegur við dýran brag
ég dreifi mínu sæði.
Sæðingameistarinn sagði fátt,
saup þeim mun oftar hveljur.
Svo þegar konan krafð'ann um drátt
kærð'ann sig frekar um beljur.
Beljurnar þær bölva hátt
bola þarf að sækja.
Fyrr var oft í koti kátt
kýrin orðin skækja.
Skækju góðri skrattast með,
skef upp holu lúna.
Girndin taumlaus, tek og treð
í tóbakinu núna.
Núna drukkið nóg ég hef
Nú er mál að linni.
Núna bráðum sætt ég sef
sænginni undir minni.
Minni æru áhlaup veitti
Andþór fyrir stuttu.
Interneti bráður beitti,
bros á vörum spruttu.
Spruttu af vörum vænleg orð
vísur einnig fór'um
Að sumbli áðan sat við borð
og saup á miði stórum.
Stóru orð úr stráki rann
en steig hann ei í vitið.
Hvítan zetor húslausan
hefur augum litið.
Lítið trúi´og treysti á
að téðan Zetor hafi
eigi málað Úbbi smá,
á því liggur vafi
Vafasami Zetorinn
segist vera hvítur.
Framleiðir hér fetsporin.
og fær nú á sig vítur.
Vítur Andþór veitti mér
visku rengdi mína.
Hann getur nú í görn á sér
grafið kenning sína.
Glottir eins og fífl
Sínalcóið saup ég títt
í sjoppunni með klíkunni
Nú gerir það mitt hjarta hlýtt
helst í Bundesligunni.