Gýll er gullið glitský mjótt í laginu (regnský sem sólin glyttir á regndropana)
Það var nú aldrei komið svar við því hvað maggadúlla er... Starir þegjandi út í loftið
1. Stelpa sem heitir Magga og er alger dúlla.
2. Misritun á orðinu magadúlla sem notað er yfir útstæðan nafla á ófrískri konu.
Hvorugt er rétt.
Vísbending: Orðið er til dæmis notað við bakstur.
3. Kökukefli kallað svo annað hvort vegna þess að kellinginn hún Magga dúllaði sér mikið með svoleiðis grip eða vegna þess að sköss hafa gegnum tíðina gjarnan dúllað við eiginmenn sína með þessum gripum. (Talið er að karlar sem kallaðir eru Maggi séu í meiri áhættu um að dúllað sé við þeirra höfuð og þessvegna sé nafnið Maggadúlla komið til en ekki til dæmis Sigga eða Gummadúlla.
Eeeh... ekki alveg rétt.
Þetta sem er líka kallað grillhanski, við önnur tækifæri?
Nei elskurnar mínar. Þetta er notað um ákveðna tegund matvæla, sem meðal annars eru notuð í bakstur. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Skjótum á lyftiduft!!
Gæti þetta verið smjörlíki?
Það var nú aldrei komið svar við því hvað maggadúlla er... Starir þegjandi út í loftið
Er þetta einhvers konar gælunafn á rúsínur?
Er þetta kannski einhverskonar kr´... krrkjhtty.... kr...ú...tt ? Hrökklast afturábak og hrasar við
Ég held ég hafi séð dúlluna hann Magga hérna áðan, hann var með hávaða svo ég rak hann nú bara út!
bakar jarðaberjasúkkulaðiköku í fyrirgefningarskyni
Gæti maggadúlla verið... eins og magarín, sem sagt: smjörlíki?