Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið Nei.
Hefurðu vaknað upp eftir fylllerí í öðru landi.
Ekki óvart.
Hefur þú náð að drekka í átta tímabeltum á einum degi?
Nei, það held ég ekki.
Hefurðu verið ölvaður í meira en tvo sólarhringa án þess að nái að renna af þér.
Nei, hef eiginlega bara verið þunn í fjóra til sex tíma í allra mesta lagi.Ljómar upp
Hefurðu lofað því að hætta að drekka í einhverri þynnkunni og byrjað að drekka strax aftur næstu helgi.
Nei
Hafið þjer velt fyrir yður hvernig hægt sje að vera þunnur í mesta lagi í einungis 4-6 tíma ? Klórar sjer í höfðinu
Já, og ég er ein af þeim heppnuGefur frá sér vellíðunarstunu
Hefurðu vaknað óþunnur eftir heiftarlega drykkju.
Já, vaknað fljótt og enn verið undir áhrifum.
Hafið þjer hætt að drekka einhvern ákveðinn drykk eftir heiftarlegt fyllerí og/eða timburmenn ?
Já!
Hafið þjér hætt að drekka einhvern ákveðinn drykk, vegna þess eins að hann var eigi áfengur?
Já vissulega.
Hefur þú fengið þér afréttara sem endaði í öðru kenderíi?
Hah já. Það var gaman. Þangað til daginn eftir þegar ég kynntist því að þynnka getur safnast upp yfir nokkra daga.
Hefur þú slysast á fyllerí þegar þú varst í sakleysi þínu bara á leið í búð?
Oss minnir ekki Veltir fyrir sjer hvort lítilsháttar óvissa í svarinu geti þýtt að um geti hafa verið að ræða fyllerí sem eigi er hægt að muna eftir.
Hafið þjer lent á fylleríi sem þjer munduð síðan nær ekkert eftir daginn eftir ?
Jaaaá... eða ég mundi eftir fylleríinu alla leið upp í Breiðholt. Ég man svo síðast eftir mér þar, en vaknaði í Keflavík. Það hlýtur því að vera dágóður slatti sem ég man ekki eftir.
Hefur þú einhvertíman hrunið svo hryllilega í það að þú dreifst ekki út úr eigin húsi?
Nei, en ég var einusinni orðin það dauðadrukkin kl 23.30 að ég drapst í stigaganginum fyrir utan íbúðina mína, mjög skemmtilegir grannarnir eftir það.
Hefurðu þurft að flýja heimilið þitt eftir þín eigin drykkjulæti , útaf illskeyttum nágrönnum.
Nei.
Hefur þú þurft að flýja heimili annarra vegna eigin drykkjuláta?
Ég geri það nú yfirleitt og helst áður en lætin byrja.
Hefur þú vakna af áfengisvímu í víðavangi?
Já, t.d. úti í garði hjá mér einn morguninn.
Ég laumaðist út með teppi handa ræflinum.
Hefur þú knúsað einhvern ókunnugan? Ljómar upp