— GESTAPÓ —
Innflytjendahliðið
» Gestapó   » Baggalútía
        1, 2, 3 ... 82, 83, 84 ... 172, 173, 174  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 21/1/08 23:24

Ég skal hjálpa þér Dúddi minn. ‹réttir Dúdda svellkaldan carlsberg um leið og þeir komast í hvarf›

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 22/1/08 00:08

Hvurslags er þetta eiginlega, ætlið þið að láta hana hanga hérna á öðru hnénu í alla nótt?! ‹Stimplar á bakið á Össu› Hana, farðu nú og leiktu þér með hinum ólátabelgjunum.

♦ brjálaði demanturinn ♦ valkyrja ♦ elvis ♦ nýliðaskelfir, konan með hinn stimpilinn ♦ blámannagrúppía ♦ fæst nú einnig með háskólagráðu ♦
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Rattati 22/1/08 03:15

‹Dustar af hnjánum á Össu› Vertu velkomin í þennan vitleysingahóp, mér sýnist sem þú eigir eftir að spjara þig ágætlega hérna. Eitt er víst, hér er allavegana oftast mikið gaman. Bara ekki taka það til þín ef einhverjir eru með nýliðaskítkast.

Formaður kvenfélagsins Truntan. Baróninn af Langtíburtistan.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Assa 22/1/08 15:54

Takk fyrir það. ‹<Stendur upp og réttir rólega úr hnjánum>› Er sko ekki þekkt fyrir að taka stríðni sem persónulegum árásum og hörundsár er ég ekki, enda heiti ég ekki Assa fyrir ekki neitt.‹Ljómar upp›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 22/1/08 16:00

‹Kemur út úr kompunni skítþunnur og fölur eins og lak með víkingahjálm á höfðinu, banjó í annari hendinni og tóma viskýflösku í hinni› Ég fann ýmislegt í þessari kompu, en hvar er eiginlega helvítis stimpillinn minn?

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 22/1/08 23:04

‹ljómar upp› Mikið assgoti hefur Assa fengið sér fagurlita mynd. ‹fær sér í nefið›

Hva, helvíti ertu eitthvað tussulegur Dúddi minn.

Það held ég nú!
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 22/1/08 23:05

‹Bankar í hausinn á Dúdda›

Þetta er ekki banjó í hendinni á þér, fulla fíflið þitt.

Er þetta ekki stimpillinn sem þú ert að leita að ?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 22/1/08 23:16

Uuuhhh... ‹Rýnir betur í „banjóið“ sitt› Kannski... Förum ekki út í einhver smáatriði. ‹Fer inná skrifstofu›

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 29/1/08 19:24

Er verið að leita að hliðinu?

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 29/1/08 21:05

Já ég týndi því, hann þarna seiðkarl var eitthvað að vandræðast.‹Stekkur hæð sína› Nú erum við komin í góð mál.‹Ljómar upp›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 29/1/08 22:11

Hvar er þessi seiðkarl? ‹lætur braka í hnúunum›

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 29/1/08 22:14

Hann er nú eitthvað lengi að koma sér á staðinn, ég hefði nú einmitt haldið að hann væri nú yfir sig spenntur að láta vígja sig inn‹Glottir eins og fífl›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skreppur seiðkarl 30/1/08 05:17

Ég er Skreppur seiðkarl, var einhver að pota í mig? Ég var að fá mér banana. Vill einhver deila banana með mér? Jú, ég hef verið að leita þessa hliðs en ekki fundið fyrr en nú og biðst jú innilegrar afsökunar á þessu framferði mínu. Banana einhver? Banana með súkkulaði inní? Heitu súkkulaði sjáðu. ‹Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega boðlegt›

Ég hef mér það ekki til hörðnunar að geta valið mér mynd og vil geta fengið upplýsingar um hvurn ég skuli ræða við vegna þessa, ef einhver vildi vera svo vænn, jú eða væn. ‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›

Það eru til 10 tegundir af fólki í heiminum, fólk sem skilur binary og fólk sem ekki gerir það. • Sumt fólk kallar það Malt í gleri en ég kalla það Bóndakók í rúðu. • Það er ekkert mál að hætta að reykja! Ég hef margoft gert það...
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Rattati 30/1/08 08:32

Smá hint: fjöldi innlegja, póstur, Enter, beiðni.

Formaður kvenfélagsins Truntan. Baróninn af Langtíburtistan.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 30/1/08 10:02

‹ Mætir með málningargræjurnar og biður nokkra af dvergunum að binda seiðkarlinn minður á meðan hún skellir smá maskara, kinnalit og glossi á hann og flissar óstjórnlega einsog gelgja á meðan› Já núna ættu Dúddi og hinir gaurarnir að geta tekið við‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skreppur seiðkarl 30/1/08 11:48

Rattati mælti:

Smá hint: fjöldi innlegja, póstur, Enter, beiðni.

‹Finnur smávegis kulda koma frá Rattata en ákveður að hafa sig hægan og fara eftir leiðbeiningum hans›

‹Grænn texti›

Það eru til 10 tegundir af fólki í heiminum, fólk sem skilur binary og fólk sem ekki gerir það. • Sumt fólk kallar það Malt í gleri en ég kalla það Bóndakók í rúðu. • Það er ekkert mál að hætta að reykja! Ég hef margoft gert það...
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 30/1/08 11:49

Iss piss , hann Rattati er bara í nostalgíukasti, honum fannst nefnilega svo gaman að vera nýliði‹Glottir eins og fífl›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skreppur seiðkarl 30/1/08 11:51

Dula mælti:

‹ Mætir með málningargræjurnar og biður nokkra af dvergunum að binda seiðkarlinn minður á meðan hún skellir smá maskara, kinnalit og glossi á hann og flissar óstjórnlega einsog gelgja á meðan› Já núna ættu Dúddi og hinir gaurarnir að geta tekið við‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

‹Er með eilítið ofnæmi fyrir hreinsunarvörum - og vatni. Vonar að þetta muni ganga skjótt yfir›

Það eru til 10 tegundir af fólki í heiminum, fólk sem skilur binary og fólk sem ekki gerir það. • Sumt fólk kallar það Malt í gleri en ég kalla það Bóndakók í rúðu. • Það er ekkert mál að hætta að reykja! Ég hef margoft gert það...
        1, 2, 3 ... 82, 83, 84 ... 172, 173, 174  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: