Ljómar upp Endilega alltaf gaman að leysa þrautir.
Þetta er rétta viðhorfið.
Kinkar kolli í viðurkenningarskyni
Ljómar upp Endilega alltaf gaman að leysa þrautir.
Lofar góðu þessi.
Jæja. Röltir inn og kemur sér vandlega fyrir eftir þægilegt jólafrí, fær sér sæti í leðurklæddan LazyBoy-stól með poppkorn í annari og kók í hinni
Þú, nýliði! Bendir á Össu Þyldu upp alla fjórðu seríuna af Frasier!
Klórar sér í höfðinu Ef þú heldur að ég eyði dýrmætum tíma mínum í það að glápa á óþarfa í imbakassanum þá ert þú ekki alveg í lagi. Svo ég fékk þetta kvæði að láni hjá Séra Vigfúsi Jónssyni, það segir allt það sem ég hugsa núna.
Ef þú hittir,
sem oft kann vera,
blíðmálugan
bakvaskara,
lát þú vel yfir
hans vinalátum,
en set traustan lás
tungu þína.
E.s. þetta er ekki þraut!
Stekkur hæð sína Sko mína!
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Vel gert! Á varla til orð Ég hef nú bara aldri séð neinn standast lítið nýliðapróf eins og þetta og gert það jafn vel. Ég held að það sé óþarfi að láta þig bíða mikið lengur. Ég held að ég stimpli þig bara undir eins! Fer á bakvið að leita að stimplinum
Úúúúú má ég, má ég!!! Blæs rykið af bleika stimplinum sínum Hvar má bjóða þér að fá hann? Ég mæli með einhverjum sæmilega áberandi stað eins og enni eða höku...
Það er nú lítið fútt í svona busavíxlum. Assa; gætirðu ekki verið með smá hortugheit og leiðindi svo við getum fengið af okkur að busa þig smá?
Það er nú lítið fútt í svona busavíxlum. Assa; gætirðu ekki verið með smá hortugheit og leiðindi svo við getum fengið af okkur að busa þig smá?
Af hverju brókar þú hana ekki eins og þú ert vanur að gera við alla nýliða sem þú kemst í færi við . Það ætti að geta framkallað smá hortugheit. Glottir eins og geðillur simpansi
Ljómar upp Takk fyrir, annars er ég ekkert hrædd við busun látið það bara koma, það verður að vera smá fútt í þessu. Ég myndi vilja fá stimpilinn á hægra herðablaðið þ.e. ef blekið er líka bleiktStekkur hæð sína
FANN HANN! Heldur sigri hrósandi á stóra rauða Samþykkt- stimplinum
FANN HANN! Heldur sigri hrósandi á stóra rauða Samþykkt- stimplinum
Mér sýnist þetta nú vera gamli My little pony stimpillin þinn sem þú heldur svo upp á.
Hvað meinarðu? Stimplar Karg ítrekað á andlitið til að gá hvort það sé satt
Á! þurrkar stimplun af nefinu Reyndu nú að haga þér eins og maður. stimplar Dúddann á rassgatið með fætinum
Hvað meinarðu? Stimplar Karg ítrekað á andlitið til að gá hvort það sé satt
Sýnist það vera satt.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið Strákar mínir veriði bara rólegir. <Fer niður á annað hné, til að sýna virðingu og býð fram aðra öxlina svo hægt sé að samþykkja nýliðann>
Bíddu, ég verð að finna rétta stimpilinn. Hendir My little pony stimplinum í ruslið enda hefur hann bara verið til trafala Byrjar að leita aftur inní kompu