mjög fínt gluggaveður en ég held að það eigi eftir að hlýna.
Ömurlegt gluggaveður á sjálfan 17.Júní. Maður vaknar hnerrandi og byrjar á að loka öllum gluggum.
En eitt er það við svona veður sem gerir 17. júní alveg ótrúlegan, það er þetta hvernig hljóðbylgjur úr míkrafónum útiskemmtana fjúka einhvernveginn upp í vindinn og slitrur úr röddum ræðuhaldara endurvarpast á ótrúlegustu stöðum í andrúminu...
Það er ekkert svoleiðis hjá mér. Býrðu nokkuð í kjallaranum Alþingishúsinu?
Æi fattarðu ekki þegar þú ert á útískemmtun á 17 júní æi þú hefur greinilega aldrei búið á 101 og þegar rokð er mikið þá geta hljóðbylgjurnar hagað sér svolítið einkennilega. Það er svolítið erfitt að skýra þetta út, en þeir eru örugglega einhverjir sem fatta þetta.
Hvar ertu í bænum, Frelli og hvernig er veðrið hjá þér núna?
Núna er ég við sjóinn. Annars bý ég á Grafarvogsheiði.
Sól og blíða en þó alskýjað og nokkur kalsi í lofti. Enginn vindur nema þessi hægi að austan
Það er ekki hundi inn sigandi í þetta veður. Varla hægt að ætlast til að fólk sé inni að vinna undir svona kringumstæðum.
Hmm...ég gæti þurft sólvarnarkrem í dag. Hver er heppilegasti styrkleikinn, svona ef maður vill ekki brenna upp til agna en hefur ekkert á móti því að fá smá lit á hörund? Veit einhver um það?
Bara tékka í apótekinu, ætli styrkleikinn væri ekki á bilinu 10-15 á Niveaskalanum...
Fann gamalt myglað Piss Búinn í klósettskápnum, númer 15. Ég vona að það hafi virkað. Ég er í það minnsta ekki orðinn eins og Frelsishetjan í útliti.
Hakuchi. Þú myndir náttúrlega fá stelpurnar hlaupandi til þín ef þú værir eins og ég. Ég skil ekkert í þér að þú viljir það ekki.
Æjj já. Nú skil ég ástæðuna.
Í dag er einmunatíð og notum vér hér með tækifærið og mótmælum því formlega að hér á þessu storm- og kuldaskeri skuli eigi vera "fljótandi" helgar (með fáeinum undantekningum, það er með öllu óheimilt að færa næstu helgi).
Æ mikið er íslenska sumarkvöldið yndislegt. Mann langar til að hoppa og skríkja með smáfuglunum.
Það er eitthvað aðeins að taka í vindinn hérna í vesturbænum. Bölvaður gegnumterkkur og kötturinn að verða kolvitlaus. Best að loka einhverjum gluggum...
Æ mikið er íslenska sumarkvöldið yndislegt. Mann langar til að hoppa og skríkja með smáfuglunum.
Svo ég vitni í orð norsku skáldkonunnar Margit Ravn: Draumbjarta sumarnótt / dásemdarík!
Á nokkuð að rigna á morgun?