Bjó um hríð í landi Svea gömlu. Hef þarlendan húðmaur á mér, sem er mun hvassari (sumir segja stingandi) húðmaur en í Bagglútíu. Get verið bráðsmellinn en er það sjaldan, nema í einrúmi.
Skefur húðmaurinn undan skó Andþórs Æ, verður maður ekki að gefa þessum nýliðagreyjum smá tækifæri til að sanna sig áður en maður fer að kremja maur og annan?!
Potar í klessuna Hey þú þarna, hvað í fjáranum ertu að gera hérna og hvernig fannstu Baggalútíu?
Æ, var bara að leita að gamalli klámvísu með þversettu innrími.
Kemur með 70 cm háan stafla af eyðublöðum
Þetta allt þarf að fylla út í áttriti til að fá inngöngu hjer Rjettir maurnum eyðublaðastaflann ásamt penna.
Ljómandi! Húðmaurinn hannaði eitt sinn eyðublað til að panta eyðublaðabeiðni.
Kallar á meindýraeyði
Meindýraeyði! Með N-i og ekki með R-i í endann!
Hvert stefnir þetta eiginlega?
Þú ert bara leiðinleg við mig.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Þú ert bara leiðinleg við mig.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég bið þig að fyrirgefa þó þú hafir óvart orðið dropinn sem fyllti mælinn hjá mér. Ég get bara ekki orða bundist lengur. Mér finnst bara hrikalegt að fólk segi endalaust frystirinum, læknirinum og meindýraeyðirinum... og þar fram eftir götunum.
Ekkert persónulegt, bara ábending um hvað betur mætti fara. Það er hins vegar rétt að ábendingin hefði mátt vera orðuð á fallegri hátt.
Ég skal friðmælast við þig ef ég fæ kakóbolla hjá þér.
Ég skal gefa þér kakóbolla ef þú tekur tilsögn. Ljómar upp og veifar kakóbolla undir nefinu á Múla
Stekkur hæð sína Ég skal reyna en ég hinsvegar viðurkenni vel að ég er frekar tregur í stafsetningu og Íslenku málfari.
Gefur Múla kakóið fyrir viðleitnina
Ljómandi! Húðmaurinn hannaði eitt sinn eyðublað til að panta eyðublaðabeiðni.
Mér finnst þessi voða krúttlegur. Má ég eiga hann?
Gjörðu svo vel fáðu þér húðmaur ef þú endilega vilt.