Var ég að segjast vita það?
Ertu farinn að neita því núna?
Var ég að segjast neita því?
Neita hverju?
Var eitthvað til að neita?
Er einhver neikvæðni í gangi?
Er ástæða til að ætla það?
Þarf að vera ástæða fyrir öllu?
Af hverju ekki?
Hvað ert þú að grípa inn í umræðuna?
Má ég það ekki?
Á ég að grípa eitthvað annað?
Viltu grípa um eitthvað annað?
Ertu að reyna við mig?
Þætti þér það verra?
Tja, á ég að svara þessu?
Er ekki þögnin besta svarið? Ljómar upp
Á ég þá að halda kjafti?