Núna gét ég hrósað happi
hér er góður tannþráður.
Hérna yrkir kunnur kappi,
kanski verður hann bráður?
Rímnaþraut er stillt á stall,
stenst ég ekki mátið.
Rímnaþraut er stillt á stall
stenst ég ekki mátið.
Billi þú ert kátur kall
kænn við heimamátið.
Blessuð Esja fagra fjall
fögnuð hjá mér vekur,
Blessuð Esja fagra fjall
fögnuð hjá mér vekur,
Einnig fíkn í sukk og svall
svitinn af mér lekur.
Símtal óvænt sem ég fékk
sérlega mig kætti.
Símtal óvænt sem ég fékk
sérlega mig kætti
er ég lenti í illum hrekk
í útvarps zúber þætti.
Ég á bæði hest og hnakk
og hatt með stóru barði
Ég á bæði hest og hnakk
og hatt með stóru barði
Gef ég oftast gestum hakk
gráðosta og annað snakk.
Kúrekinn er kátur hér
kálfarnir hann totta.
Kúrekinn er kátur hér
kálfarnir hann totta,
það er lati Lusifer
lævís, bölvuð rotta,.
Stallinn upp á stígur
strákstuli í peisu.
Stallinn upp á stígur
strákstuli í peisu.
Í miðbænum hann mígur
má það kalla hneisu.
Þeir sem pissa á víðavangi
verða af lífi teknir
Stallinn upp á stígur
strákstauli í peysu.
Mann á undir mígur
munað veitir hneisu
Ekkert er jafn unaðslegt
öldruðum að veita
Þeir sem pissa á víðavangi
verða af lífi teknir
Smalað er í gæsagangi,
í grjótið fyrst samt reknir.
Ekkert mun jafn unaðslegt
öldruðum að veita
en stólpípu, með stórri tregt,
og stykkin on'af fleyta.
Þetta fannst mér frekar súrt,
og fer ég því í bann!
Þetta fannst mér frekar súrt,
og fer ég því í bann!
Orðadritið ofurklúrt
út úr þér víst rann.
Bara'að grínast gamli minn
gott er oft að djóka.
Bara'að grínast gamli minn
gott er oft að djóka.
Þig ég senn í fjöru finn,
með færisbút og króka.
Flotholtin er fínt að nota
finnist grjót á botni.
Flotholtin er fínt að nota
finnist grjót á botni
Í belginn minn með pinna pota
púff er von ég blotni.
Sekk ég niðrí sandinn hratt
-svei mér þarna'er aða.
Sekk ég niðrí sandinn hratt
-svei mér þarna'er aða.
ef garpur niður gengur bratt
gloppótt er hans staða.
Sjáðu þarna sjáðu til
sjáðu núna þetta
Sjáðu þarna sjáðu til
sjáðu núna þetta
Sérðu ekki svartan hyl
svei þú ert að detta.
Bull er eðall, rugl og raus
rennur hratt úr tranti.
Bull er eðall, rugl og raus
rennur hratt úr tranti.
Síðan að hann á mér fraus
mér eitthvað finnst að vanti.
Treg er ekki tunga mín
er takka puttar berja.
Bull er eðall, rugl og raus
rennur hratt úr tranti.
fastra skrúfa furðulaus
finnst að mikið vanti
Af blút þú verður voða hress
og vankast líka hausinn
Bull er eðall, rugl og raus
rennur hratt úr tranti.
Kalt er úti fuglinn fraus
þótt frostið núna vanti.
Of seinn.
Af blút þú verður voða hress
og vankast líka hausinn,
kolruglaður fantur fress
færilúsar pausinn.
Hausinn tómur en hugur frjór
hvernig má það vera.
Starir þegjandi út í loftið