B
Billi minn gættu að
Texi fer með staðlausa stafi
´ í þessari svokölluðu vísu sinni
Bull og þvaður kallin kvað
köttur út í mýri,
Hérna finnst mér brotið blað
bölvað ævinýri.
Hverfisgata, Hæðargarður, Hlíðarsmári
Kalkofnsvegur, Krókamýri
komdu að ríða, Lappi hýri.
Hýr er eflaust Everto
elsku vinur góði.
Texi segir never no
nema dama bjóði.
bíður þú til böguskrafs
bara eins og svona
ef verður þú með vol og tafs
vill þig enginn kona.
Konuna mína fína og fríða
finnst mér gott að kyssa.
Konunni minni máttu ríða
mín vegna (því hún er hryssa).
Hrossakjöt er meirt og mjúkt
magann oftast gleður,
Vinum finnst það vera sjúkt
er viðreksturinn skeður.
B
Billi minn gættu að
Texi fer með staðlausa stafi
´ í þessari svokölluðu vísu sinni
Bull og þvaður kallin kvað
köttur út í mýri,
Hérna finnst mér brotið blað
bölvað ævinýri.
Lappi, þetta er „Braghenda“ hjá Texa, sjá hérna á Heimskringlu.
Skeður lítið skuðum í,
skelfing dapurt fjörið.
Best er því að fara í frí,
finnst mér þetta kjörið.
Kjörbúð Silla og Valda var
vinsæl meðal kvenna
mátti kaupa kaffi þar
og kaloríum brenna.
Brenna vitar belji stormar
blek um svarta nótt.
Langar súlur ljósið formar
lýsir sjávardrótt.
Dróttinn hringa drattaðist
draugfullur í bólið
Fallið ekki fattaðist
fastar herti tólið
Mjóa Una tólið tók
tældi karl í bólið,
hristist til og skelving skók
skömmin hljóp í fólið.
[obbossía... of langt á milli stuðla í fyrstu ljóðlínu... Una mjóa tólið tók myndi breyta miklu... Skabbi]
Fólin oftast fela sig
forðast góða staði.
Ráðleysan nú rengir mig
er reið hún inn að hlaði.
Tólin oftast tæla þig
er taka ýmsa staði.
Ráðleysan nú rengir mig
er reið hún inn að hlaði.
Þessar ruglvísur fara alldrei í ljóðabók... Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Ég vil skora á Skabba að skamma hann Lappa.
[Ég var aðeins búinn að hafa það að orði að þetta væri rangt stuðlað hjá honum... en takk fyrir áskorunina...Skabbi]
Hlaði vil ég hleypa úr
á hesti vökrum.
Reið- ég elska alltaf -túr,
það engum veldur hnökrum.
Hlöðum okkar haglabyssu
höldum svo til veiða
Eitt samt hér ég veit með vissu
að vini má ei deyða.
Of seinn.
Hnökrar alltaf eru til
sem ýmsir vilja'ei laga
Samt það alldrei alldrei skil,
endalaus er baga.
Bagalegum bögum hér
bölva oft í hljóði.
Agalega leiðist mér
ljóðabósa sóði.