Þolanlega, þó mjöðmin sé eitthvað að stríða mér akkúrat núna.
Farðu varlega í mjaðmahnykkina og ef þú et á leið í aðgerð láttu þá ekki læknana drepa þig úr vindverkjum . Ég þekki konu sem lá útúrreykt með vindverki á grindverki.
Og lagaðist grindverkurinn? Starir þegjandi út í loftið
Já til allrar hamingju var verktaki nokkur staddur þarna og hann var ekki lengi að taka bæði vindverk og grindverk enda var það verktakans verk og sagt er að verkið hafi gengið vel en ég skil reyndar ekki samhengið í þessu. Hvers vegna þurfti þá verktakinn að taka verk sem var vel gangandi?
Ég fæ höfuðverk af þessu helvíti.
Já til allrar hamingju var verktaki nokkur staddur þarna og hann var ekki lengi að taka bæði vindverk og grindverk enda var það verktakans verk og sagt er að verkið hafi gengið vel en ég skil reyndar ekki samhengið í þessu. Hvers vegna þurfti þá verktakinn að taka verk sem var vel gangandi?
Ég fæ höfuðverk af þessu helvíti.
Það er eðlilegt, þú varst lægstbjóðandi!
Hörmulega. Gigtin fer versnandi.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ég vil fara að fá sumar!!!
Mér líður nokkuð vel. Gefur frá sér vellíðunarstunu Stígvél!
Ég er í dramakasti aldarinnar.
Líður eins og afdalamanni sem ekki hefur fengið rafmagn heim á bæinn sinn...
Mér líður sæmilega núna. Sakna elskunanr minnar alltof mikið.
Ég er frekar pirruð. Hef ekki fengið frið til að æfa mig á kontrabassann. Síðan er ég lasin, sem bætir ekki úr skák. Fyrir utan þetta hef ég það fínt.
Ég er nokkuð þreytt eftir að hafa verið að í 14 tíma í dag.
Samt er ég eiginlega bara meira ánægð.
Ég er bara í dágóðu standi, þökk fyrir.
Ég er frekar stressuð yfir því að þurfa að hringja mig inn veika, því ég hef aldrei gert það áður.
Andþrengsli og svitakóf hrjá mig nú. Það læknast ekki fyrr en úrslit ráðast í fyrstu umferð Mafíuleiksins. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Enn vantar lykilfólk á borð við Limbra og Tigru. Ég vonast til að þau reki inn nefið í dag, og hef nú þegar meira að segja boðið fólki að taka að sér hlutverk Tigru. Það gengur auðvitað ekki þegar fólk skráir sig til leiks og lætur síðan bara ekki sjá sig. Felur sig í tígrisdýraheldu neðanjarðarbyrgi
Vel fyrir utan að ég var alltof seinn í vinna Blótar strætó í sand og ösku