Klórar sér í höfðinu Mig vantaði bara 2.100.005.040 eftir svona 3 ár...þú segir bara til.
Eigi er til neinn ráðherra flugmála (og raunar ekki heldur samgönguráðherra en því fleiri ráðherrar því betra). Það hlýtur að vera sjerlega skilvirkt og hagkvæmt fyrirkomulag að eigendur flugfjelaga sjeu jafnframt ráðherrar þess málaflokks Starir þegjandi út í loftið.
Já, hví ekki að nýta sérfræðiþekkingu á öðrum vettvangi? Ég styð þessa tillögu eindregið.
Ég sé að það er til ráðherraráðherra og þá hlýtur líka að vera til ráðuneytaráðuneyti, eða hvað? Ég gæti alveg tekið að mér að vera skrifstofustjóri ráðuneytaráðuneytis, að því gefnu að skrifstofan sem ég stjórna sé ekki neðar en á 18. hæð í lyftuhúsi með góðu útsýni til allra átta, Chesterfield sófasetti, Kjarval á veggjum og poolborði auk fleiri hluta sem verða nánar tilgreindir síðar.
Rifjar upp æskulögmálið góða að þögn er sama og samþykki
Ég hef marglega sótt um ímis embætt hjá háttvirtum og fagurlimuðu glæsimenninu og forseta vors en eigi fengið nokkuð það er því tímabærta að mér veitist staðan sem Gautaborgarmálaráðherra Beggalútiu ég sæki líka embætti Stafsettningsmálaráðherra.heitir það kanski stafsettningarmálaráðherra?
Ég verð að segja fyrir mitt leyti að Billi Bilaði er fyrirtaks efni í forsætisráherra. Hann er bæði krúttlegur og góðhjartaður, en jafnframt tiltölulega viljalaus og auðveldur í stjórnun. Þetta eru allt góðir kostir sem forsætisráðherra þarf að hafa.
Auk þess er örin mjög traustvekjandi því það sýnir að hann hafi gengið í gegnum sitthvað á lífsleiðinni.
Vantar ekki ráðherra geimferðamála? Ég skal gera það. þ.e ef góð laun og aðgangur að færustu eldflaugasérfræðingum fylgir með.
Ek óska hér með eftir stöðu aðalritara Baggalútíu.
Ég ítreka beiðni mína um að fá eftirfarandi embætti:
– Stórvesír yfir Baggalútíu
– Sjeik af Kaffi Blút (með röri)
– Hljóðfæramálaráðherra
– Guð
Í staðinn skal ég láta eftir útvarpsstjóraembættið yfir til Útvarpsstjóra.
En hver vill verða fornleifaleyfismálaráðherra?
En hver vill verða fornleifaleyfismálaráðherra?
Hvað felst í því embætti?
Að gefa út leyfi til að gramsa í, og jafnvel breyta, fornminjaþráðum; og rukka himinháar sektir fyrir þá sem gera það án leyfis.
HAR HAR HAR!
VLAD!!!!
Á ekkert að skoða stöðuveitingalistann?
Jú, það stendur til og erum vjer samþykkir flestu hjer. Vjer höfum hinsvegar áhuga á að bæta ekki bara við nýjum embættum heldur fá líka nýjan (eða a.m.k. settan/starfandi) forsætisráðherra. Óæskilegt er að forsætisráðherra sje jafn sjaldsjeður og nú er raunin. Engin framboð eða tillögur hafa hinsvegar komið fram í það embætti.
Nánar um þessi mál í kvöldinnleggjum.
Ég vill verða forsætisráðherra !
Ég er óskipulagður, drykkfeldur, auðkeyptur, alltaf til í múgæsing og óskipulagðar óeirðir og mun vera á alltof dýrum bíl.
Er það ekki einsog forsætisráðherra á að vera ?
Jú, það stendur til og erum vjer samþykkir flestu hjer. Vjer höfum hinsvegar áhuga á að bæta ekki bara við nýjum embættum heldur fá líka nýjan (eða a.m.k. settan/starfandi) forsætisráðherra. Óæskilegt er að forsætisráðherra sje jafn sjaldsjeður og nú er raunin. Engin framboð eða tillögur hafa hinsvegar komið fram í það embætti.
Nánar um þessi mál í kvöldinnleggjum.
Þýðir þetta, Vlad, að beiðni minni er játað?Starir þegjandi út í loftið