Útrýmingarbúðir nasista í Póllandi?
Þetta er annaðhvort tékknesk borg eða eitthvað gæluyrði pólverja yfir bíóið á Patreksfirði, ég hallast þó að hinu síðarnefnda....
Slavneskur keimur af þessu. Eða spanskur jafnvel, svona í aðra ættina allavegana.
Kutná Hora er 22.000 manna bær í Tékklandi. Bærinn var fyrr á öldum þekktur fyrir silfur sem fannst í miklu magni í berginu undir honum. Í dag er bærinn þó þekktastur fyrir annað. Hvað er það?
Horá er allavega dans já, ég man það núna...
Er ekki bæjarfélagið þekkt fyrir að hýsa einvherja elstu dómkirkju í heimi og hún hugsanlega frá fjórðu öld eða eitthvað...?
Kutna Hora er þekktast fyrir dómkirkjuna sem er hluti af "UNESCO world heritage", og grafhýsi þar sem einhver sjúkur munkur dundaði sér við að búa til pýramída úr hauskúpum og skjaldarmerki, ljósakrónur og allan andskotann úr mannabeinum. Heimsótti báða staði 2005.
Ég ætla að skjóta frekar á grafhýsið
Steini er nálægt, en reyndar er allur gamli miðbærinn verndaður. Í úthverfi bæjarins er Allraheilagrakirkjan, en undir henni er einmitt grafhýsi (eða beinageymsla öllu heldur -ossuary-). Árið 1870 hóf útskurðarmeistari nokkur að sortéra beinin, og raðaði þeim svo upp í m.a. ljósakrónu, skjaldarmerki og sína eigin undirskrift. Þetta er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn í Tékklandi.
Ég kem bara með nýja spurningu:
Hvaða ár hóf ölgerðin Egill Skallagrímsson framleiðslu á Hvítöli?
Mig minnir að þeir hafi hafið framleiðslu á Ákavítinu ekki fyrr en 1930, ætli þeir hafi byrjað á hvítöli(hvað er það?) sama ár?
Hvítöl er sama og jólaöl... minnir mig að ég hafi lesið utna á flösku af því um síðustu jól...