Setur óvin ríkisins neðst í neðstu dýflissuna sem er svo djúpt í iðrum jarðar að fólk finnur fyrir hitanum frá kjarnanum, en þar eru einmitt allir geislavirku risakrókódílarnir líka geymdir
Setur óvin ríkisins neðst í neðstu dýflissuna sem er svo djúpt í iðrum jarðar að fólk finnur fyrir hitanum frá kjarnanum, en þar eru einmitt allir geislavirku risakrókódílarnir líka geymdir
Já, þeir eru geymdir þar. Ég var einmitt að leita að þeim. Ljómar upp
Hah! Bellibrögð Don de Vito hafa engin áhrif á mig...félagar mínir eru með sambönd. glottir eins og...óvinur ríkisins myndi glotta
Hah, innantómar hótanir! Þessir svokölluðu félagar þínir eru nú þegar orðnir vinir mínir. Það var ekki erfitt að sannfæra þá.
Halló! Ég er nýbúi hér. Það er erfitt að koma svona inn í nýtt samfélag. maður veit ekkert hvað maður á að gera. Enda hef ég nokkrar spurningar sem ég var að vonast til þess að þið, hinir innfæddu, gætuð svarað.
Mig langar að skipta um mynd til þess að líkjast ykkur, hinum innfæddu, meira. En vandamálið er að ég er búinn að skrifa tíu sinnum inn á spjallið og smella á "Niðurskipan". Þar stendur:
"Komdu að svo búnu aftur hingað með því að velja UPPSETNING úr listanum sem þú sérð hér beint fyrir ofan og alltaf er sýnilegur eftir að þú hefur skráð þig inn."
Valkosturinn UPPSETNING er ekki á listanum hjá mér... Í "Niðurskipan" er hinsvegar valmöguleikinn "Velja mynd úr myndasafni". Þegar ég smelli á hann koma tveir nýjir möguleikar þ.e. "velja mynd" og "hætta með mynd". Báðir þessir valmöguleikar virðast þó bara skila mér aftur á þann stað sem ég var á áður en ég smellti á "Niðurskipan".
Getur einhver hjálpað mér með þetta nýbúavandamál?
Auk þess vil ég vekja athygli á því að hlekkurinn "Skrifaðu TÍU sinnum á spjallið" virkar ekk.
Talar afar hægt svo nýbúinn skilji Kooommmmduuu sææææll kæææææri nýýýýbúúúúiiiiiii. Nennir því svo ekki lengur
Þú sendir einfaldlega nýlega passamynd á netfangið enter@baggalutur.is og einn góðan veðurdag mun hún birtast þér þegar þú skráir þig inn. Hve langan tíma þetta ferli tekur fer alfarið eftir því hvað er langt þangað til Enter man eftir okkur næst.
Stígðu svo tvö skref til hægri fyrir mig... Hitar tjörupollinn aðeins
Ljómar upp
Þakka þér fyrir skjót og greinagóð svör Anna Panna
Hrökklast um tvö skref til hægri og hrasar við
Hvað er lýk?
Það hlýtur að vera komið af orðinu laukur...
Svo að til að lýkjast okkur vill hann verða lukinn lauk?
Að lýkjast einhverjum hlýtur þá að tákna að viðkomandi vilji fara í laukbað með viðkomandi.
Öss, þessir nýliðar verða skrítnari með hverjum degi sem líður!
Amen.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Afsakið ég átti auðvitað við að ég vildi Hvítlýkjast ykkur. Ekki nema von að þið hafið haldið að ég væri eitthvað skrýtinn.
Þarna byrjarðu aftur. Hvað þýðir eiginlega að vera skrýtinn? Hefur það eitthvað að gera með skreytigirni þína?
Nei það er rétt að skrifa skrýtinn. Ég er nú ekki alveg súr í gegn