Já, sú hugmynd væri ekki galin, að láta krógana föndra plútóníum. Þörf er einnig á því að láta þá fikta við tilbúning á miklum birgðum af kóbalti, svo eigi þurfi í sífellu að leita uppi nýjar námur.
Bara um að gera að láta þau hafa hanska við föndrið. Þannig endast þau lengur við án þess að hendur þeirra laskist og síðan bara nógu mikinn þrúgusykur fyrir dimmar og langar næturvökur.
Vaktavinna væri einnig möguleg, en þá þyrfti að vísu mun fleiri krakka.
Eru strax byrjaðar umræður um árshátíð 2007 ? Ljómar upp
Það væri eigi öllu verra.
Koma svo, hver vill , getur, hefur áhuga og nennu til að mæta á svona skrallGefur frá sér vellíðunarstunu ÉG
Stóra spurningin er ekki síður hver vill, getur, hefur áhuga og nennu til að sjá um svona skrall Stofnar strax öryggissveitir til að halda óvinum ríkisins fjarri ef af verður. Pantar 12 þyrlulendingarpalla.
Góð spurning.
Hví getum vér eii selt áritaðar leikaramyndir af stjörnunum til sérvalinna fjárfesta?
Haldið síðan skrall aldarinnar á hverju ári fyrir vextina. Ljómar upp
Ég vil taka það strax fram að ef ég kem að einhverju leyti nálægt undirbúningi fyrir næstu árshátíð verður það með því skilyrði að þar verði ekki matur ... nema þá að einhver annar nenni að sjá um matreiðslu og framreiðslu í þetta skiptið.
Takk fyrir það. Reyndar var ég aðallega í framreiðslunni og uppvaskinu; Heiðglyrnir á heiður á matseðlinum ... og þetta var allt mjög vel heppnað og dásamlegt. En það væri óneitanlega skemmtilegra að hafa meiri tíma til að umgangast fólk á næstu árshátíð.
Já, þetta var afar vel heppnað og 'krafa' yðar eigi ósanngjörn.
Einfaldast er auðvitað að Glúmur sjái um allt Glottir eins og fífl.
Ef þú sérð um allt, þá skal ég sjá um allt hitt. Glottir eins og fífl
Ohh, þarna náðirðu mér. Blótar herfilega og rífur hár sitt