En arfi?
Ja, arfavitlaus kemur til greina.
Nú eða Þarfavitlaus.Glottir eins og fífl
Þarfi eða ekki þarfi.Það er efin
Hvernig væri að skilgreina vandann? Ég hef enn ekki áttað mig á hvert umræðuefnið er og er þó með gáfuðustu sonum Íslands. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég verð að játa að ég hef það á tilfinningunni að ég sé að mæta hér vitsmunalegum ofjörlum mínum Grípur um augu sér: búhúhú. Það dugar mér ekki að vera með B-A próf í heimspeki frá HÍ.Klórar sér társtorkinn í svitastorknu höfðinu.
...Það dugar mér ekki að vera með B-A próf í heimspeki frá HÍ...
Hefur það einhvern tíma dugað einhverjum eitthvað? Klórar sér í höfðinu
Nei. Fyrir utan það að prófið verður að vera í 'rjettri' grein (eða rjettum greinum) þá verður það að vera frá HB (Háskóla Baggalútíu) Uppgötvar skyndilega að hugsanlega hefur gleymst að stofna þann skóla.
Hvar er hægt að nálgast umsóknareyðublöðin?[
Ja, maður spyr sig! Klórar sér í höfðinu
Ef þú hefðir spurt mig, sem þú náttúrulega gerðir ekki, hefði ég svarað sem svo að þú ómissandi ó-þarfi hér á Gestapó.
Af hverju þurfa feministir alltaf að vera svona rembulegir? Hristir hausinn og minnist ófremdarástandsins á heimilinu þegar mamma hans var rauðsokka
Gerir símaat í feminista
Hefur verið þarfagreint hvort óþarfi sje eður ei að greina hvort Þarfagreinir sje Þarfi, þarfi eða óþarfi eða er slík þarfagreining óþarfi ?
Ég kannast við þetta vandamál. Ég veit sjaldnast hver ég er sjálfur.
Hefur verið þarfagreint hvort óþarfi sje eður ei að greina hvort Þarfagreinir sje Þarfi, þarfi eða óþarfi eða er slík þarfagreining óþarfi ?
Nei, það er full þörf á slíkri þarfagreiningu. Einnig er þörf á þarfagreiningu á þörfinni á slíkri þarfagreiningu. Og þörf á þörfinni á þörfinni á ...
Þarfagreinir er nokkurs konar fljúgandi furðuhlutir á Baggalútnum. Hann hverfur og birtist jafn skjótt og undarlega og fljúgandi furðuhlutir gera. Hann hreyfir sig meira að segja eins og þeir. Og líkt og með FFH stafar engum beyg af honum nema þeim sem hafa ekkert skrifast á við þennan snilling hingað til. En ólíkt öllum FFH sem hafa brotlent, getur Þarfagreinir alls ekki brotlent. Því er Þarfagreinir meðal lífsseigustu persóna sem komið hafa fram í sögu sólkerfisins á Baggalúti.