Ég er bara að bíða eftir að fólk vakni hér á bæ svo ég fái félagsskap þangað til ég fer í skólann. Ég ákvað nefnilega að fara ekki í sturtu í morgun, á síðustu stundu, og nennti ekki að fara aftur að sofa.
Skjálfa. Það er þáttur um snjóflóð á Discovery.
Ég er að lesa skemmtilega grein um mökunaraðferðir húsamúsa... afar áhugavert.
Horfa á Disney Channel með dóttur minni meðan ég pota í Baggalútinn.
Ég er, aldrei þessu vant, að mála mynd!
Undirbý mig nú til að klára Birting. Falleg, en umfram allt fyndin saga.
Ég er að hugsa um að standa upp og koma mér í sturtu.
Þó fyrr hefði verið Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Vonandi með heimskulegu svari þá?
Annars er ég bara að japla á kexi. Japlar
Akkúrat núna er ég að vandræðast yfir hvort ég eigi að pæla aðeins í fræðunum mínum, taka til eða fá mér að borða... áður en ég fer til vinkonu minnar að drekka bjór.
Ég er að hlusta á plötuna "Acid Jazz og Funk" með hinni ágætu sveit, Sælgætisgerðinni og spjalla við félaga mína í gegnum þetta stórkostlega, en djöfullega tölvufyrirbæri.