Ekkert fyrir utan Jay Leno. Jay Leno er aumkunarverður rassasleikir og fyrirsjáanlega leiðinlegur húmoristi.
Letterman er mistækur en hefur einlægni, absúrdískan húmor og viðtalsvit sem Leno getur einungis látið sig dreyma um.
Bull og vitleysa í ykkur,Blótar herfilega og rífur hár sitt Jay Leno er bestur
Einhver þáttur um pólitík í Chile. Ekki skemmtilegur.
Ísland í bítið.
Ég var að horfa á afbragðs mynd um fjórar árstíðir Vívaldís. Verkið er krufið til mergjar og farið er yfir lífshlaup meistarans. Þetta var fróðleg og umfram allt skemmtileg mynd. Það mætti vel gera fleiri svona myndir um perlur tónlistarinnar. Efnistökin voru það góð.
Á eftir því sá ég í fimmtánda sinn auglýsingu um Þorláksmessutónleika Bubba Morthens. Myndskeið eru sýnd af Bubba þar sem hann syngur. Ég er hins vegar alltaf að misheyra hann þar sem hann syngur: Suma dreymir bull og græna skóga.
Endursýning á Kastljósinu frá því fyrr í kvöld. Nú er einmitt að koma að hápunktinum.
xT eða öllu heldur Staupasteinn.
Endursýning á Kastljósinu frá því fyrr í kvöld. Nú er einmitt að koma að hápunktinum.
Skiptir í ofboði á endursýninguna
Horfði á Ísland í Dag áðan. Ég hélt ég myndi aldrei komast á þetta stig en ég er að fá ógeð á fegurðinni í þessum fjandans þætti. Er virkilega nauðsynlegt að hafa tvær fegurðardísir sem þáttastjórnendur daginn út og inn? Þá á ég við þessa brjóstgóðu dökkhærðu og þessa ljóshærðu með stóru augun. Er fegurð orðin að inntökuskilyrði? Þetta er orðið verulega pirrandi. Hvernig væri að henda inn einni ljótri eða sveittum karlmanni með inn í dæmið svona til að koma á kosmísku jafnvægi á ný?
Fullkomlega sammála þér. Fallegu fólki er of hátt undir höfði gert hér í þessu landi. Ég vil fá fleiri sem líkjast venjulegu fólki á skjáinn.
Burt með fegurðarfreaks!
Horfði á Ísland í Dag áðan. Ég hélt ég myndi aldrei komast á þetta stig en ég er að fá ógeð á fegurðinni í þessum fjandans þætti. Er virkilega nauðsynlegt að hafa tvær fegurðardísir sem þáttastjórnendur daginn út og inn? Þá á ég við þessa brjóstgóðu dökkhærðu og þessa ljóshærðu með stóru augun. Er fegurð orðin að inntökuskilyrði? Þetta er orðið verulega pirrandi. Hvernig væri að henda inn einni ljótri eða sveittum karlmanni með inn í dæmið svona til að koma á kosmísku jafnvægi á ný?
Sammála! Held að svona lið sé nebbilega farið að virka neikvætt á flesta - svo er ekki eins og hæfileikar eða íslenskukunnátta spili á neinn hátt inn í valið á þessu fólki.
Verra er að Kastljós er orðið alveg eins - ein dökkhærð þar sem fer alveg sérdeilis í taugarnar á mér - ekki vegna útlitsins - heldur vegna almenns ruddaskapar.
Er það eitthvað ,,töff" eða ,,gáfulegt" að tala við viðmælendur sína með því að hreyta í þá dónaskap og illa ígrunduðum, kjánalegum athugasemdum? Er það eina merkið um svokallaða ,,rannsóknarblaðamennsku"? NB, þú þarft ekki að komast að neinu - bara vera nægilega ruddalegur og ókurteis!
Annars er mér sama - horfi bara ekki á þetta drasl - er líka í prófum...
Örugglega eitthvað hundleiðinlegt. Mig langar upp í sófa að horfa á eitthvað... en hvað?! Sýgur upp í nefið og hóstar.
Það er að klárast einhver lásí "hermanna" della á stöð tvo
algjört rugl.