Eitt sem ég skil ekki, úr hverju á fáninn að vera?
Maður fær það á tilfinninguna að sumir séu að rugla saman fánum og skjaldarmerkjum.
Nei nei jarmi það eru líka til kringlóttir fánar, við erum ekki einu sinni byrjaðir á skjaldarmerkinu.
Flestir fánar sem ég hef séð geta jafnvel heilalausir apakettir teiknað og litað í höndunum. Þennan fána þarf maður að vera með próf frá Listaskóla í Belgíu til að geta svo mikið sem gert eitthvað sem líkist honum.
Mér lýst vel á þennan, síðan tökum við upp bauv-trú...
Já takk fyrir það. Það mætti svo bæta á hann einhverju eins og stjörnum, hvar er svo örninn vígalegi? Blár haförn á brúnum fleti.
Kannski við ættum að hafa stjörnur á fánanum sem myndu tákna mikilfengleika Baggalútíu - eða nei annars, tæki alltof mikið pláss.
Blár örn á brúnum fleti? Það er soldið... þýskt?
Allt er vænt sem vel er þýskt. Baggalútur úber alles.
Það er svo sem ekkert mál að setja inn stjörnur og það þarf ekkert að taka neitt stórt pláss, þær þurfa ekki nauðsynlega að hylja allann fánann og vera gríðarstórar. Ég kíki á þetta seinnipartinn.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að eldri umræður um fána Baggalútíu er vjer nefndum fyrr í þræðinum eru fundnar eftir mikla leit:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=3415
Ef einhverjir dirfast að sýna þá leti að lesa eigi allan þráðinn má finna fána Vambans (og jafnframt langbestu tillöguna í umræddum þræði) hjer:
Þetta er sannarlega fallegt flagg, það vantar bara að krýna hnöttinn með kábójkrúnu ritstjórnar.