Þegar upp komst að Maggie var dóttir Kang geimveru, eftir að Marge var brottnumin af þeim og "sædd" barni hans.
Ekki alveg nógu nákvæm svör, Wiglihi nákvæmari, en Ísak á undan.
Æji , þið sláist bara um rjettinn.
Það sem vantaði er að geimverurnrar og Simpson-fjölskyldan gátu ekki komist að samkomulagi um framtíðarbúsetustað Möggu og því var gripið til hans Springer. Besserwisserast burt af þræðinum
Leyfi mér hérmeð að varpa fram næstu spurningu fyrir svefninn:
Nefnið hina þrjá Sideshow karaktera í The Krusty Show.
Mér dettur í hug 4: Sideshow Mel, Corporal Punishment, Mr. Teeny og Tina Ballerina.
Nei ekki alveg: þetta eru þeir 3 sem eiga það sameiginlegt að hafa í þáttunum The Krusty Show að heita Sideshow ........ eitthvað.
Hugsar stíft
Mér dettur helst í hug Sideshow Bob , Sideshow Mal, Og segjum bara.. hhmmm Sideshow Homer ?Klórar sér í höfðinu
Nei ekki alveg rétt, við skulum orða það svo að fyrri tveir eru réttir en vantar síðasta aðilann
Veii!
Hvaða fjögur „lönd” er talað um að séu í Itchy & Scratchy land?
(Bónusspurning; hvar lögðu þau þegar þau komu í I&S land?!)
Skrambinn, ég sá þennan þatt fyrir alls ekki svo löngu.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Þau lögðu a.m.k. voða langt frá innganginum.
searing gas pain land,Unnecessary Surgery Land , Explosion land, og torture land.
Og þau lögðu á The itchy lot.Ljómar upp
Það voru ,,Torture land", ,,Explosion land", ,,Searing gas pain land", ,,Unnecessary surgery land" og þau lögðu í Itchy lot. Það var ansi stórt.
Wiglihi: Hrmpf! Þú hefðir mátt orða þessa spurningu aðeins betur. Ég hélt að þú værir að biðja um núverandi hliðarsýningarfólk Krulla. Hefðir þú beðið um fyrrverandi þá hefði öldin verið önnur. Það vantaði auk þess Sideshow-Rahim frá 8. áratugnum. En... ég er nú dagfarsprúð önd og erfi þetta alls ekki við þig.
„Remember kids, we're in the Itchy lot!” Brilljant setning!
Hvæsi, þú átt réttinn réttir hvæsa rétt úr bökuðum baunum og rabbabarasultu
Laumaði ekki hvæsi inn svari á undan! Jæja, nú fer að fjúka í mig...
Nei, ég er nú svo róleg önd. Hallar sér aftur og fægir happapeninginn
Er þetta ekki bara tímamunurinn hjá þér Jóakim?! Starir þegjandi út í loftið