Lyftir upp annari augabrúninni og horftir rannsakandi á Ameliu
Svo að þetta verður svona. Ég skal bara segja þér það núna að það er nóg af hórum og druslum á Gestapó!
Stekkur aftur á Ameliu og klæðir hana í nunnubúning
Og vertu svo til friðs stelpurófa!
Ef hér eiga að vera miklar deilur um í hvaða fötum Amelia má vera í og hvurjum ekki, þá verð ég að mælast til þess að hún sé hreinlega bara ekki í neinum til að valda sem minnstu fjaðrafoki.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Svo að þetta verður svona. Ég skal bara segja þér það núna að það er nóg af hórum og druslum á Gestapó!
Stekkur aftur á Ameliu og klæðir hana í nunnubúning
Og vertu svo til friðs stelpurófa!
Ég verð að segja að mér finnst nú furðu lítið af druslum og hórum hér. Hef eiginlega enga séð. Nema aulinn vilji taka hlutverkið að sér og sitja að því ein? Klórar sér í höfðinu
Vertu annars velkomin, Amelia.
Ef ég færi að leika druslu eða hóru þá myndi Gestapó tæmast.
Starir þegjandi út í loftið
Gestapó myndi ekki tæmast þótt þú myndir klæmast.
en vertu um það viss
og ekkert fliss
Leibbi Djass fílar ekki diss.
Ljóðagerð gerist vart glataðri en þetta.. En þegar í útistöðum við Róm.
Glatað.
Verið ekki með þetta rugl, það er pláss fyrir alla hérna. Líka druslur og ræfla.
Vjer bjóðum Ameliu hjer með formlega velkomna með eftirfarandi fyrirvörum:
(1) Að hún eigi eftir að birtast hjer aftur.
(2) Að eigi teljist hún til óvina ríkisins Bætir nafni á langan lista yfir þá er eigi er enn vitað hvort teljist til óvina eður ei.
Mér sýnist þú bara hafa sloppið bísna vel hingað til, en það er sennilega samt bara af því að þú ert kvenkyns...
Eigi er það rjett, nýliðaskelfirinn ógurlegi hann Frelli (Frelsishetjan - mætti sjást hjer miklu oftar) gerir engan greinarmun á gestum eftir kyni enda kyn hans (hennar) stundum nokkuð óljóst.
Á ég að taka við af Frella? Ég get verið ógurlega ógnvekjandi stundum.
Urrar og froðufellir
Ekki slefa aulinn minn, það fer þér ekki vel.
Dauður eftir skóla.
Sammála Don, Hann er miklu betri í að slefa. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Horfir í kringum sig ringluð
Vjer bjóðum Ameliu hjer með formlega velkomna með eftirfarandi fyrirvörum:
(1) Að hún eigi eftir að birtast hjer aftur.
(2) Að eigi teljist hún til óvina ríkisins Bætir nafni á langan lista yfir þá er eigi er enn vitað hvort teljist til óvina eður ei.
Þakka þér fyrir. Ég tel mig nú hafa uppfyllt kröfu númer eitt, en hvernig fer ég að því að sanna að ég sé ekki óvinur ríkisins? Er nóg að gefa þér últrakóbalt?
GAMALL MEÐLIMUR!
Hún tók það nú reyndar fram áðan að hún hefði fylgst með þessu í svoldinn tíma.
Einmitt og það vita nú allir sem lesa meira en tvo þræði á Gestapó að últrakóbalt er rétta leiðin að hjarta Vladimirs!
(Velkomin annars Amelia...)
Leiðirnar að hjarta voru kunna að vera fleiri en eigi er þetta a.m.k. slæm leið til að losna af listanum ógurlega, sjer í lagi ef mútufje fylgir með Setur sviga utan nafn í listanum.