Var reyndar að grínast - já.....er bara svo rasandi á ykkur! (vissi samt ekki að hann hefði komið hingað að hrekkja fiskinn okkar...)
Donavan? Hann var reyndar fínn...en NEI!
Viðkomandi er enn að túra á fullu og er m.a. með tónleika í London þann 18.
Hér er um sólólistamann að ræða en ekki meðlim í bandi.
Nebb - langt frá því!
Ásbjörn nokkur Morthens tók eitt þekktasta lag þessa manns upp á sína arma fyrir fáeinum árum og skemmst er frá því að segja að útkoman var katastrófísk...
Tom Waits?
Nebb - ekki Waits kallinn
Viðkomandi er svona í rólegri kantinum - og þó að þið þekkið hann ekki þá er pottþétt að mömmur ykkar fíla hann!
Viðkomandi var á hátindi ferilsins á áttunda áratugnum og hefur einstaklega ,,hugljúfa" rödd...
Nei, nei, ég ætlaði að segja Van Morrison.
NEI
ekki vælukjóinn Morrison....
Viðkomandi er - ef mér skjöplast ekki - búsettur í Kanada og hefur verið lengi...
KOMA SVO!
Nei - ekki Krissi .....
Lesa nú yfir allar vísbendingarnar og koma svo með skynsamlega tilgátu!
Nei - ekki alveg svooooo HALLÆRISLEGUR....
Við Heittelskaður og foreldrar okkar þekkjum þennan mann mjög vel - það getur ekki verið að enginn annar kannist við hann!
Viðkomandi var með tónleika hér fyrir örfáum árum.....
Þetta fer nú að verða óþolandi. Mælir blóðþrýstinginn Var kauði aldrei í hljómsveit?
Ekki svo ég viti - skal kanna það snöggvast...
Er alla vega bara þekktur sem sólóari og hefur leikið í söngleikjum - lék m.a. Tevje í Fiðlaranum fyrir margt löngu í London...
Síðustu sex ár hefur maðurinn selt yfir 10 miljón plötur - bara í Þýskalandi!
Hann er einna vinsælastur þar en er samt þekktur alls staðar (amk hjá þeim sem eitthvað vita í sinn haus!)
Hefur tekið þátt í margs konar góðgerðastarfsemi og var með útvarpsþátt á BBC.
Held ég fari nú að verða búin að segja allt sem ég veit...
Ljómar upp Þýskalandi?
David Hasselhoff ?Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ef ekki, þá gefst ég upp og fer í fílu.
Nei - en þetta er gáfulegasta tilgátan hingað til!
En þessi maður náði aldrei kyntáknsstandardi Tómasar - meira svona hlýlegur og mjúkur maður - meira svona týpa til að kúra hjá heldur en að riðlast á...
Eftir allar vísbendingarnar þá eigið þið nú að fara að hafa þetta!