Slafra í mig slurk frá Mjása,
slyngur er hann kokkur.
Minnisstæð er matarpása
mjög hann kætir okkur.
(Takk Mjási minn fyrir margar afbragðs vísur)
Okkur hefur ekkert gengið
Ekki komið Baldvin út.
Svo fer allt sem illa er fengið.
Settu ekki á munninn stút.
stútinn flösku sting að munni
stút á munninn settu
súptu þá á svölum brunni
síðan öðrum réttu
Rétt er réttara en rangt
Rosalega er það skrýtið
Ey vil ég hafa þetta langt
hví ekki að hafa þetta lítið
Lítið er vort litla land
lifandi og skrítið
Skipið fast við svartan sand
sigla skal í bítið
bítið haus af skæðri skömm
skelfilegt er stuðlabrúk
ferleg birtist fýlan römm
fyllið ekki skjá af kúk
http://www.heimskringla.net/bragur/bragur/b2.asp
http://rimur.is/?i=52
Kúks er von úr gesta gump,
gusast hér á skjáinn.
Prósaljóðin algjört prump,
pusast út í bláinn.
Blámenn andast birtast hér
bulla úr sér leir.
Höfuðstafur enginn er
eða stuðlar tveir.
Tveir þeir ólmir vildu yrkja
andann ljóða boða
betur mega stuðla styrkja
ef stökur vilja hnoða
Hnoða brauð og hveiti
Hvurn dag fyrir sig
Sendi ég nú þetta skeyti
skemmtun er fyrir mig
Mig ég lít í spegli, spakur.
Spring af gleði.
Ávallt er á velli vakur.
Veill á geði.
Geði mínu get ei stjórnað,
græt af hreinni skömm.
Ég hef fjölskyldunni fórnað
fyrir nokkur grömm.
Grömm af kóki gagnast vel,
gæða lífið rósum.
Kókið fæ ég, kókið sel,
kókið er í dósum.
Dósóþeus drekkur ekki mikið núna
Hann er að fitla við frúna
sem fæst við að mjólka kúna.
Kúna þurft'að kelfa fljótt
kallað var á bryndil.
Tifa lét sá títt og ótt
tæknilegann dindil.
Síldin er farin að sunnan,
sést bara alls ekki meir.
Tóm bíður helvítis tunnan,
togbátaútgerðin deyr.
Deyr eða drullast að landi
dregin ei verður á flot.
Samherja sandurinn grandi
slá’ann svo loksins í rot.
Rotna mega Davíð og Dóri.
Þeir drógu okkur út í stríð.
Djöfullinn úr þeim augun klóri.
Yrkja skulum um þá níð.