Kæru Baggar!
Með Sunnudeiginum sem leið, kom veturinn til Svíþjóðar.
Það hefur háð mér mjög að vera svona nálægt Ykkur enn þó svó langt í burtu.
Þegar Litla laufblaðið sagði fyrst á göltinn sunnudagin tíunda júni klukkan tuttugu og þrjú núll tvö var mánudagur og klukkan núll eitt núll tvö hjá mér.
í gær þegar Ívar Sívertsen kysti mig góða nótt Klukkann Tuttugu og tvö og fimtíu og átta kysti ég hann til baka þegar klukkann var aðeins tuttugu og þrjú og fimtíu og níu hjá mér á sama deigi.
Elsku vinir nú þegar ég er kominn svo nálægt ykkur , hvað á ég að gera við þennan klukkutíma sem ég hef sparað. hefði ég átt að kyssa bróður Sívertsen í einn tíma í viðbót, vatna krökkunum ?lesa fyrir hundinn? eða farið út að pissa með stofublóminn? Baggar hvað skylduð þið gera með heilan klukkutíma sem þið feinguð
allt í einu?
Við töpum hvort eð er þessum eina klukkutíma í vor þegar blómin gægjast uppúr útipottum og við getum aftur öfundað útlöndin af að eiga miklu betra veður.
Réttir upp hendi Fyllerí.
Þambar vodka í bjór Skál! xT
Hvað er að sjá ykkur, krakkar, drekkið þið áfengi?hneykslast
Væri ekki nær að nota þennan klukkutíma í sund og sturtu?
Ég nýtti klukkutímann í svefn. (En ég fékk einmitt einn klukkutíma gefins um daginn, líkt og þrímenningarnir.)
-
Starir þegjandi út í loftiðJa þegar ég dvaldi fjari þessu frostbarða skeri við stúdíu. Var þessi klukkutími heilagur og alltaf nýttur á sama hátt, ungir sem aldnir stunduðu krár og ölstofur þegar þessa klukkustund bar upp sem aldrei fyrr og af en meiri alúð og einurð. Svo var hrópaða þrefalt hurrrra þegar klukkan var færð aftur um einn tíma og allir drifu sig á barinn. Já einsog kom hér mjög snemma í þessari umræðu er lang best að nota þennan tíma til drykkju ! ! ! xT
Út af þessum skrattans breytingum og ruglings á tilkynningarskyldu hótelsins vaknaði ég klukkutíma of snemma og þurfti þar af leiðandi að húka klukkutíma lengur á flugvellinum. Með Íslendinga allt í kring um mig! Svo það var ekkert gaman.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann