— GESTAPÓ —
Útlenskar og íslenskar kommur í félagsritum
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 29/10/05 21:11

Til þeirra er málið varða,

Enska úrfellikomman hefur alltaf verið til vansa í félagsritum. Nú birtast skástrik með útlenskum kommum. Ég tók eftir því að þær magn þeirra jókst í hvert skipti sem maður ýtir á Uppfæra. Prófaði íslenskar gæsalappir (þ.e. shift 2), þá batnar það strax og einungis eitt skástrik fylgir, en eykst þó í hvert sinn um eitt skástrik þegar ýtt er á Uppfæra.

Hvernig er það? Geta tækniórangútanarnir ekkert gert til að laga þessi hvimleiðheit?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 29/10/05 21:22

Gætir þú gefið mér dæmi um þær kommur er valda þér hugarangri sem og þær kommur er gera það ekki ?

Ég er vissulega engin tækni-órangúti. En apaköttur er ég og hef gaman af hverskyns tækniflandri (þó svo ég kunni sjaldnast að leysa það).

-

Þorpsbúi -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jóakim Aðalönd 30/10/05 01:20

Hlýtur að vera einhver smágalli í kóða. Debug!

Seztur í helgan stein...
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 30/10/05 13:09

Hakuchi: " " eru hreint ekki íslenskar gæsalappir! Íslenskar gæsalappir eru „ “
Vilji maður „ (opna gæsalappir) þá heldur maður niðri vinstri alt hnappi og slær inn 0132 á talnaborðið.
Vilji maður “ (loka gæsalöppum) þá heldur maður niðri vinstri alt hnappi og slær inn 0147 á talnaborðið.
Þannig eru íslenskar gæsalappir.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 30/10/05 13:53

„Þetta virkar“ en þetta er svo flókið. Maður nennir ekkert að vera að ýta á einhverja fimm takka til þess að gera einhverjar skitnar gæsalappir.

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 30/10/05 14:17

Trúðu mér, þetta kemst upp í vana.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 30/10/05 15:51

Ívar Sívertsen mælti:

Hakuchi: " " eru hreint ekki íslenskar gæsalappir! Íslenskar gæsalappir eru „ “
Vilji maður „ (opna gæsalappir) þá heldur maður niðri vinstri alt hnappi og slær inn 0132 á talnaborðið.
Vilji maður “ (loka gæsalöppum) þá heldur maður niðri vinstri alt hnappi og slær inn 0147 á talnaborðið.
Þannig eru íslenskar gæsalappir.

Ég veit fullvel hvernig íslenskar gæsalappir eru og skrifaði ekkert að " " væru íslenskar. Sökum þess að ég er latur maður hef ég notað tvær kommur ,, og shift 2 " til nálgunar við íslenskar gæsalappir í texta sem ekki þarf að vera 100% réttur. Hef myndað mér þann fordóm að flestir geri það ef þeir nenna að nota þessar íslensku á annað borð.

Þetta er ekki vandamál á spjallborðinu en hins vegar er þetta vandamál (hjá mér amk.) í félagsritum. Þið getið séð dæmið um þetta í nýjasta pistli mínum. Það skrifaði ég ,,kvikmyndahátíð" (það seinna er shift 2) og þá birtist ,,kvikmyndahátíð/" í texta. Ég man ekki hvað birtist þegar ég notaði ,,kvikmyndahátíð''(ensk úrfellingarkomma), en þá kom enn meira af aukadrasli. Í báðum tilvikum tvöfaldast þessi kóðavessi við hverja uppfærslu (þ.e. það bætist við / þegar ég uppfæri með shift 2 í ofanverðu .dæmi).

Ef órangútanöpum Enters tekst ekki að leysa úr þessu þrjóska vandamáli legg ég til að þeir setji inn íslensku gæsalappirnar sem valhnapp í ritham félagsrita eins og boðið er upp á skástrik ofl.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 30/10/05 15:54

‹Kemur inn og fattar að það stóð KOMMUR, en ekki KONUR í heiti þráðarins›

‹Fer að gramsa eftir gleraugunum›

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 30/10/05 16:07

blóðugt mælti:

‹Kemur inn og fattar að það stóð KOMMUR, en ekki KONUR í heiti þráðarins›

‹Fer að gramsa eftir gleraugunum›

Hey, ég las þetta líka svona! ‹íhugar að fá sér sterkari gleraugu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 30/10/05 16:14

‹Finnur hvergi sín gleraugu.›

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 30/10/05 16:19

Hakuchi mælti:

Til þeirra er málið varða,

Enska úrfellikomman hefur alltaf verið til vansa í félagsritum. Nú birtast skástrik með útlenskum kommum. Ég tók eftir því að þær magn þeirra jókst í hvert skipti sem maður ýtir á Uppfæra. Prófaði íslenskar gæsalappir (þ.e. shift 2), þá batnar það strax og einungis eitt skástrik fylgir, en eykst þó í hvert sinn um eitt skástrik þegar ýtt er á Uppfæra.

Hvernig er það? Geta tækniórangútanarnir ekkert gert til að laga þessi hvimleiðheit?

Þetta ætti að vera komið í lag.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 30/10/05 16:28

Sko þig.

‹Gefur Enter fílakarmellu›

» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: