Vér félagi minn, Upprifinn, höfum verið að ræða alvarlegt vandamál hér á Gestapó. Svo virðist sem um miðnætti þá detti allt samband vort við Baggalút út og vér erum skildir eftir í einhverju tómi sem fyrst nær fylli sinni á nýjan leik þegar slökkt er á netsambandi og endurræst efir nokkra bið.
Hefur oss helzt dottið í hug að þegar þetta gerist sé ritsjórn að endurstilla klukkuna og dagsetninguna. Líklega er það gert handvirkt og því dettur allt samband niður á meðan. Þetta er gersamlega óþolandi og því krefjumst vér skýringa og tafarlausra úrbóta.
Þætti oss vænt um að heyra frá fleiri félögum okkar hvort þeir kunna frá því sama að segja og jafnframt að sé svo þá skrifi þeir hér með undir þessi mótmæli.
Skrifar nafn sitt á skjalið
Vjer bendum sjerstaklega á þennan þráð:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=2816
Skrifar undir skjalið
Ég tek alltaf þátt í mótmælum. Skrifar undir. Hverju er annars verið að mótmæla?
Ég fer nú alltaf að sofa kl: 20 00 en þetta lítur út fyrir að vera hressandi mótmæli,,, þannig að ég er til í að leggja nafn mitt við.
Skrifar undir með blóði úr hægri löpp til að sýna samstöðu Ég er reyndar aldrei á ferðinni hér um miðnætti.
Skrifar undir
Ég er samt alltaf farin að sofa um það leiti, enda skóli oft næsta dag.
Skrifar undir til að vera með.
Má ekki mótmæla öllum andskotanum hér?
Fyrir þá sem ekki vita, þá er óþarfi að slökkva á tölvunum eða endurræsa, best er að bíða bara róleg og fara í frystirinn... ná sér í klaka og setja í glas... hella síðan Ákavíti í glas... sötra það í rólegheitunum og fyrr en varir þá er Gestapó tilbúið aftur... Skál xT
Hripar nafn sitt niður á pappírssnepilinn Þoli þetta ekki. Einstaklega leiðigjarnt.
Vér mótmælum allir! Slær hnefanum í borðið
Ég er algerlega sammála þessu! Ég bara hreinlega heimta að fá að setja X-ið mitt einhversstaðar!!! Krotar X upp um alla veggi og út um allt blað!
Svo kom ég líka með gjafir handa ykkur öllum.
Dregur fram sloppa á línuna. Að sjálfsögðu eru allir merktir hverjum og einum að framan, en að aftan stendur stórum og skýrum stöfum: "Vér mótmælum öll... Er það ekki annars?"
Allir hljómar betur!
Afturkallar alla sloppa með tölu, breytir skriftinni á þeim
Betra? Gefur frá sér vellíðunarstunu
Frostið var nærri þrettán mínútur... hrikalega pirrandi... jæja verð að fara að sofa skrifar undir plaggið
Já það er svona að skrafa svona mikið. Það tekur sinn tíma að prenta út afrakstur dagsins og koma honum fyrir í skjalageymslum Baggalútíu. Vesalings Bjúrókratinn sem sér um þetta er að fá brjósklos eftir að vera að bera þessa risavöxnu blaðastafla í hvelfinguna.