Kastar upp spilum
Ef þú tekur þau ekki upp, gerir það enginn!
Ok. Köstum upp á það. Ef það verður slétt tala er það Gestapó, annars hitt.
Hvílík snild !hvílíkt glerhús! Einu sinni barði ég mér fyrir brjóstið. síðan þess hef ég átt erfitt með að andas og farinn að drepa tyttlinga.
Hæ mamma!
Þetta er akkúrat það sem ég talaði um í félagsritinu mínu. Skamm!
Hvað er þetta maður, ég var bara að gera eins og athyglissjúku krakkarnir sem hanga fyrir aftan virðulega fréttamenn og veifa eins og óðir séu framan í myndavélina, æpandi „Hæ mamma!“.
Annars myndi ég nú halda að það væri í lagi að láta stutt innlegg fylgja með, svona almennt séð - hjá Gestapóum sem eiga það til og jafnvel oftar en ekki að skrifa lengri innlegg.
Ég er þó á þeirri skoðun að hnitmiðuð og innihaldsrík innlegg séu betri en orðlöng innlegg sem segja lítið. Samanber þetta hér... Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Enda baðst ég afsökunar aftar í þræðinum. Eða þannig
Ofnotar Enter
lagar innleggið aðeins, ekkert mikið Oj! Dóni!
Kaupir hrepparíg í skinnaverksmiðju Sambandsins, lepur leðursófa og grefur heimspekilegar hugsanir bak við kamarinn. Hoppar á öðru nýranu með bronkítis í hælunum.
OG HÆTTIÐI SVO AÐ VERA GÁFULEG Á ÞESSUM ÞRÆÐI!
Það er ósk sem mér er ómögulegt að uppfylla. Gengur á bananahýði og flýgur á hausinn
Jamm.... tiltekt.... Setur leirtauið í sturtubotninn og smúlar með handsturtunni. Hellir kóki á gólfið og þurrkar það svo upp - gólfið glansar af hreinlæti! Tæmir allar skúffur í stofusófann, hendir í svartan ruslapoka öllu sem hugsanlega þarf að nota aftur. Setur restina inn í frysti. Skellir sér svo út í rigninguna, íklædd sængurveri, og er þar með búin í sturtu
Fer í kafarabúning og dansar við lemúr þar til sólin kemur upp í Túrkmenistan. Selur kvóta og kaupir Skoda. Rúntar um sveitir landsins og drekkur möl. Kastar forseta rútunnar út og signir sig. Haleluja. Skerpir skauta, býr til ost og þrumu Gauta. Fellur í ómegin, opnar fallhlífina og svífur upp til himins. Hittir karlinn í tunglinu, gefur honum á hann, hnerrar.
-
kastar sér fram af grindverki íklæddur dökkgrænum kjól með þyrluderhúfu á höfðinu. Rúllar sér svo frá grindverkinu og upp hús afa síns. Matreiðir þar tvo kalkúna yfir skorsteininum og setur þá svo undir hendurnar og hleypur þannig upp á ljósastaur og rabbar við ljósaperuna um uppruna lífs í Svíþjóð.
Ofnotar Enter
lagar innleggið aðeins, ekkert mikið Oj! Dóni!
Hljómaði allavega betur en "misnotar Enter."
Verður ekki hneykslaður á hegðun Kóngsins Hoppi mér allar lifandi lýs á höfuð...
dánlódar trafalgartorgi með sultu, hleypur á símanúmer og danglar með nefinu í smábagga. Opnar stóran bjór
tafsar á roði og afþakkar sopa af ljósritunar malbiki úr rafvæddri hendi Guðna Ágústus keisara
Lætur letidýri í té táneglur sínar, hrækir tréspíra ofan í pottlok frá Nýju-Geníu og súpar seyðið úr nösunum á feita stráknum úr Hinum fimm fræknu