Er ekki komið niðurstaða á fjárlög, sumpartin reiknaði ég með að Baggalútur kæmi með með tölvert meiri afgang en þeir eru að státa sig af hérna á Íslandi !?
Eftir að Baggalútur færði sig yfir á rekstrargrunn hefur allt gengið á afturfótunum út af heiftarlegum ellilífeyrisskuldbindingum til handa Myglari. Ég spái áframhaldandi halla á fjárlögum Baggalúts í ljósi óhagstæðar aldurssamsetningar hans. Eina leiðin út úr kröggunum er að brenna höfuðstöðvarnar og sækja tryggingarnar og sprengja upp gagnastöðvar lánadrottna, koma Myglari fyrir kattarnef eða finna upp yngingarlyf til að halda honum frá eftirlaunum.
réttir Hakuchi leiðrétta útgáfu af fjárlögum Baggalútíu
þú varst að lesa upp úr fjárhagsspánni 2000
Ég skal lina þjáningar Myglars og annarra að hætti Stalín fyrir lítið sem ekkert. Hugsar dreyminn um dýrðardaga Stalín. Hann linaði sko þjáningar margra.
Já Stalín var ein stór verkjapilla ! (með skegg,,, sem í raun gerir hana að betri pillu)
Myglar myglar ekki. Hann hefur borðað svo mikið af Grahamskexi að hann mun líta út eins og níræða gamalmennið sem hann er eftir 3000 ár.
springur úr hlátri
Jú, það vinnur fátt á myglu. Penesilínið, sjáðu til. Eins gott að hann heitir ekki Formalínus.